Fjórir litlir samsæra-punktar

Gaddafi var ekki drepinn útaf Afríkudínarnum, heldur útaf því að hann sannaði að Græna Bókin virkar (sem er svipuð hugmynd og Endurreist Þjóðveldi). Einnig að hann var langt kominn að breyta Líbýju í grænan aldingarð með vatnsborunum og þannig afsanna "loftslags breytingar af mannavöldum."
 
Við höfum áður rætt einfalt rúmmáls-algrím til að fá sömu niðurstöðu; byggt á aðferð sem öll skólabörn eigkunna. Þú getur treyst tvennu; Elítan lýgur og Antivistar vinna enga heimavinnu.
 
Hefurðu heyrt talað um dúkatinn sem var heimsgjaldmiðillinn í tvær aldir?
 
Hann var búinn til með "the great reset of venice" sem voru fimm "krossferðir" að undirlagi "the black nobility." The black nobility er vafið vissri dul, stundum kennt við jesúítisma og black pope og stundum black notibility of venice, en hefur ekkert með þessa klúbba að gera.
 
The "black nobility" er galisískar og karpatískar fjölskyldur sem barist hafa um yfirráð yfir "evrópsku valdi" og reynt að ná öllum heiminum á sitt vald, í margar aldir; aðal andstæðingur þessara fjölskyldna eru lígúrísku fjölskyldurnar.
 
Tveir þekktustu "starfsmenn" þessara karpatísku/galisísku fjölskyldna (og transilvanískra), eru t.d. Karl þriðji og Ghislaine Maxwell.
 
Dúkatinn hvarf, breska sterlingspundið er í dag smámynt, dollarinn dó í sumar, ... það er engin "new world order" í gangi, og verður aldrei; það er hugtak markaðssett af hliðvörðunum Bill Cooper og Eustace Mullins fyrir fimmtíu árum, til að slá ryki í augun á þér.
 
Þú getur treyst einu, betur en öllu öðru; Antivistar og samsæraútskýrendur, vinna ALDREI neina heimavinnu. Meirihluti þess sem hér kemur fram, hefur áður verið útskýrður í Arkívinu.
 
Græna bókin:
 
Loks þriðji punkturinn, um menntun.
 
Í fyrra var mikið rætt um innfall Íslenskunnar, og tveir virtir prófessorar í Íslensku vildu leysa vandann með lögum og útfærslu þeirra í reglugerð. Nú er ljóst að menntun á landinu er drasl, svosem mikið hefur rætt verið undanfarnar vikur. Lausnin: að leggja niður eina stjórnvaldsstofnun (losna við sextán (1+6=7) fræðingaepli) stofna nýja og herða síðan tökin á ríkismenntun þjóðarinnar - eða greindarræktun lýðsins!
 
Staðreyndin er sú að börn hérlendis eru fangar innprentunar frá 2ja til 15án ára aldurs, og vilji þau starfsframa bætast við 4ur til 9ju ár til viðbótar. Síríuslý? Er ó-ljóst að ríkisafskipti af innprentun eru vandinn?
 
 
 
 
Rúsínan í pylsuendanum, er heimaverkefni fyrir þá sem látið hafa glepjast af "new world order" útskýringum samsæraskýrenda og antivista. Finndu út hvaða þrír kverúlantar fundu hugtakið upp, einn í lok nítjándu aldar og tveir í lok þeirrar tuttugustu, og berðu saman við áróður og útskýringar undanfarinn áratug. Tvö þessara nafna hafa þegar komið fram hér.
 
Stundum þegar ég ræði við antivista, sem ásaka mig fyrir að taka ekki mark á Sannleikanum um Lýgina, spyr ég þá hvort þeir hafi gert framangreinda heimavinnu og geti sagt mér hvaða þrjú nöfn bera ábyrgð á þessum útskýringum og hafi viðhaldið þeim þar til þær gripu og eignuðust eigið líf.
 
Einnig bendi ég þeim á að nýheimskerfið fæddist 1920, og hafði tvennar merkingar og hvorug þeirra finnst í framangreindu. Viðbrögð antivista við þessu eru ætíð þau sömu og viðbrögð almennings við antivistum.
 
Einstöku sinnum, ef samræður eru þeirrar náttúru, minni ég á að allt sem "þeir" ætla sér að koma á, var þegar komið 2019 og að Covid aðgerðin skemmdi fyrir þeim, frekar en að hjálpa þeim, og stóra spurningin í því ljósi er ef planið var að hefja aðgerðina 2030, og fylgja henni eftir með föstum skrefum, hver þjófstartaði henni haustið 2019?
 
Jafnvel Antivisti getur séð að [heims]Elítan er æðisgengin (Frantic) síðan í september 2019, og allt sem hefur gerst síðan þá, er fullkomlega óraunsætt.
 
Þetta síðasta er best útskýrt þannig; meðan antivistar reyna að vekja almenning, vek ég antivista með sömu aðferð og með sama árangri. Sýndu stýrðu andstöðunni sannleikann um hennar eigin dyggðamerkingar og þú endar sem einmana miðaldra karl í kofa á fjalli, hvers eini félagsskapur eru örfáir sérvitrir bloggvitríngar hinumegin við skjáinn.
 

Mér finnst soldið kúl að það er ekkert antivista vídjó sem hefur gert greiningu á hvernig Iphone og Android geta lesið og sent "heim" sjáldursviðbrögð við öllu sem fólk les og heyrir á snjallsímum, og því geta algrím Elítunnar sérsniðið hvað birtist í feedinu, óháð því hversu frjálsir eða óritskoðaðir miðlarnir eru sem þau nota.

Á persónulegu nótunum.
 
Í dag er annar í jólum, síðari dagurinn sem Letihaugur athugar heimilin og hvernig þau unnu úr heimsóknum bræðra hans tólf og einnar systur hans, dagana þrettán fyrir jól. Öll munu þau heimsækja sömu glugga þegar systkini hans snúa aftur hvert til sinna fjalla, næstu þrettán næturnar.
 
Já, það eru fjórtán jólasveinar, og af ástæðu. Þarf að útskýra tölurnar?

Nútímafólk á erfitt með að höndla, að þessir vættir séu alvöru, hvers vegna sumir nutu þeirrar sérstöku náðar að kynnast þeim, get ég ekki svarað. Hins vegar er ljóst, að einhver dulinn vilji er fyrir að saga þeirra var endursögð á okkar tímum, og sá vilji var ekki minn.

Ég minni á að bloggið mitt er spennulosun, og lesist sem slíkt, og að megnið af því sem hér kemur fram, hefur þegar verið ítarlega rætt í Arkívinu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband