Þriðja hefti FÍB blaðsins 2023

Kommúnistarnir sem skólakerfið hóf að ráða til barnakennslu upp úr 1970 (eða fyrr) standa fastir á því að sósíalisminn hafi frelsað fólk úr ánauð, og losað lýðinn við aðalsættirnar. Þetta er firring og siðlaus rangsnúningur. Svipað og með trúarbragðastríðin, sem engin voru.

Einhver afbökun á þrjátíu ára stríðinu í Evrópu á sautjándu öldinni og einhver Zíonismi Kaþólsku kirkjunnar frá 1100 til 1300, sker ekki kökuna. Smyr ekki brauðið. En fólk sem ekki kannar hvort verið sé að ljúga að sér, kaupir alls kyns moðreyk sem veisluhöld.

Öll stríð sögunnar og öll þjóðarmorð allra alda, og öll skatta misnotkun allra tíma, blikna við hlið ránöldunnar, morðöldunnar og stríðsþorstans sem hófst með öld sósíalismans 1908. --Mælanleg staðreynd

Ættirnar sem stýra stjórnmálum, fjölmiðlum og efnahagslífinu, eru allt saman afkomendur aðalsættanna, og hreppstjóranna. Kannski ekki hundrað prósent, en því sem næst. Það er enginn munur í dag á bændanauðinni (Serfdom, Serfs) í Vestur Evrópu 1750 eða í Rússlandi á sama tíma, og ánauð hins frjálsa vestræna borgara í nútímanum.

Munurinn er að lygasaga sósíalismans er best heppnaði moðreykur allra tíma.

Hefurðu andað að þér moðreyk? Hann er baneitraður. Einnig ef þú andar að þér lykt úr votheysgryfjum. Þú uppgötvar það yfirleitt of seint.

Þegar ég áttaði mig á því árin 2016 til 2018 að Vesturlönd væru á nákvæmlega sama stað og Kína er í dag, eða Sovétríkin voru 1980, hugmyndalega, stjórnvaldslega og menningarlega, að enginn munur væri lengur á vestrænum stjórnmálaflokkum og Kínverska KommúnistaFlokkunum (KKF) eða gamla Sovéska KommúnistaFlokknum (SKF), var augljóst; ef maður þekkti hugmyndamengið.

En í ofmenntuðum heimi (les. innprentuðum, heilaþvegnum) þar sem fólk missir tilfinningu fyrir sjálfsvaldi, sjálfsvirðingu, merkingarfræði og loks eigin tungu; er tilgangslaust að útskýra þetta. Hvað þá að benda á lækninguna. Hið einfalda er of flókið þeim sem lifa við duld (Complexes).

Í nýlegri færslu benti ég á leiðarann í nýjasta hefti FÍB blaðsins (3ja hefti 2023). Í leiðara þessum er skotheld mæling á serfun (bændanauð, landnauð, þrælanauð) samtímans, mælirinn er skotheldur. Ekki nóg með það; ég kannast ekki við að neinn stjórnmálaflokkur hafi rætt stærstu skattheimtu allra tíma og mesta stjórnvaldsofbeldi allra tíma hér á Íslandi.

Ég kannast ekki við að neinn samborgara minna, sem ég hef átt samræður við undanfarna vikuna, kannist við umræðuefnið. En þeir kannast við allskyns moðreyk úr fréttastormviðrinu. Ég nefndi í téðri færslu að tölurnar væru þess eðlis að ég gæti ekki tekið þær saman og endurbirt þær.

Valdi þess í stað að birta skjámynd af færslunni. Ef þig vantar skilning á hvað orðfærið (frasinn) innfallin siðmenning merkir, þarftu aðeins að vista skjámyndina og lesa hana vandlega, tölu fyrir tölu. Sem fyrr segir; hún er vog, eða mælir.

 

FLÝIÐ, LIFIÐ AF. Þú lífgar ekki dána menningu, né endurreisir innfallna siðmenningu. Þú flýrð viðurstyggðina.

 

Hægri-smellið á myndina - og opnið í sér flipa (New Tab) fyrir fulla stærð:

 

20231130-224823

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Góður að vanda Guðjón.

Að öðru; það er nokkuð síðan að farið var að bjóða upp á moðreyk í krukku sem forrétt á "fínni" veitingahúsum, -á svona nokkurskonar Michelin matseðli.

Það er varla nema von að allt sé eins og það er.

Bestu kveðjur.

Magnús Sigurðsson, 1.12.2023 kl. 06:21

2 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

He he, Magnús það er bannað að þefa upp úr krukkunni.

Bestu kveðjur.

Guðjón E. Hreinberg, 1.12.2023 kl. 16:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband