Hver syrgir sautján milljónir?

Í upphafi "farsóttarinnar" hikaði maður við að efast, af þeirri einföldu ástæðu að maður efast um hversu stórt er hægt að ljúga auk þess sem maður vill trúa á góðvild (Altruism) annars fólks. Maður vill ekki horfast í augu við, eða viðurkenna fyrir sjálfum sér, að til er illgjarnt (Wicked) og meinfýsið (Cynical) fólk, sem að yfirlögðu ráði, og jafnvel hópum saman, vinnur öðru fólki mein.

Í febrúar, mars, apríl og maí, 2020, fylgdist maður með fréttum og maður gerði ráð fyrir að "vísindin" færu rétt með eða vitnað væri rétt í þau. Það var samt eitthvað skrýtið við þetta allt saman, og þá ekki síst þá furðulegu múgsefjun sem greip um sig í okkar upplýsta vel menntaða heimi.

Of margt við farsóttasöguna gekk ekki upp (Did not compute). Langt mál væri að telja það allt upp og ekki tilefni til þess hér. Hitt er svo annað, að sum okkar sem grúskað hafa í ýmsu og komist að fleiru, og e.t.v. misskilið meirihlutann, höfum oft þá hvöt að grúska smávegis í þeirri frásögu sem samfélagið er upptekið af hverju sinni.

Eitt af því sem ég gerði var að fyljast með opinberu Covid-tölfræðinni hér heima, einnig þeirri heimstölfræði sem var uppfærð daglega á vefsvæðum Alþjóða heilbrigðissttofnunar (AHS, WHO), samtímis var birt á vefsjá John Hopkins rannsóknar- og háskólasjúkrahússins, og setti ég allar helstu tölur upp í reiknilíkani.

Enginn fjölmiðla gerði slíkan samanburð. Enginn fjölmiðill krafði stjórnvöld um rekjanleg og áreiðanleg svör, öllu var kyngt ómeltu. Öllum þótti sjálfsagt að loka þjóðina inni, binda hana niður eins og belju á bás, og slökkva á efnahagslífinu, gleyma borgaralegri siðfræði (Ethic); aþþíbara. Og þannig er það enn.

Mælanlegar staðreyndir, eða þannig.

Bar ég tölur þessa reiknilíkans saman við þekktar tölur úr skráðum farsóttum 1957, 1968, 1974, 2009, og 2012. Fljótt kom í ljós að engin farsótt var á ferðum, svo áhuginn var vaknaður. Ef verið er að ljúga, hvernig get ég sannað það - fyrir sjálfum mér fyrst og fremst - og þar með afskrifað þann ótta sem verið er að markaðssetja.

Fjölmiðlar á sama tíma voru uppteknir af draugasögum um einhvern svartadauða á miðöldum og spænska farsótt 1918, sem engin marktæk vísindagögn eru til um!

Ég vissi að fenginn reynslu að það skiptir engu máli hversu öfluga sönnun þú hefur, varðandi fyrirbæri sem Antivistar og Samsæraútskýrendur hafa mikla ástríðu fyrir, þ.e. að vekja fólk. Hinn almenni maður og hinn opinberi, þeir trúa þeim sannleika sem meginstraumurinn ýmist velur eða markaðssetur og þó allir viti að áróðurinn eða matreiðslan sé lýgi, þá stendur hver og einn með sínum fótboltaklúbb.

Auk þess er tilgangslaust að flauta til hálfleiks þegar Úlfur-Úlfur múgsefjun er í gangi.

Þegar grúskinu lauk, þann 2. júlí 2020, var mér ljóst að engin farsótt var á ferðum, auk þess sem nokkuð öruggt var að enginn hefði sannað téðan Sars-CoV-2 vírus, eða fyrri útgáfuna Sars-CoV frá 2003. Að báðir "vírusar" voru túlkun út frá mjög brengluðu og skrumskældu PCR algrími, og að PCR algrím geta með engu móti greint og sannað að einhver sé smitaður af vírus eða bakteríu.

Sama sumar var CDC í Bandaríkjunum búið að viðurkenna í sitthvorri skýrslunni að hvorki gætu þeir einangrað "vírusinn" né sýnt fram á að lífsýni sem talið var smitað gæti smitað annan lífsýni.

Um svipað leyti hófst Antivisminn um allan heim. Flóðbylgja vitnisburðar fólks sem sömuleiðis hafði reynslu af grúski og rannsökuðum efasemdum, hófu að birta á öllum þeim félagsvefjum sem það hafði aðgang að; viðtöl við viðurkennda sérfræðinga í erfðafræði, efnafræði, lífefnafræði, vírusafræðum, bóluefnafræði, farsóttafræði, og fleiri akademíska fræðimenn, sem allir bentu á rekjanlegar staðreyndir, a) engin farsótt er á ferðinni og b) fyrirhugaðar mRNA sprautur eru stórvarasamar og beinlínis hættulegar.

Jafnvel fræðingurinn sem fann aðferðina upp, fyrir meir en tuttugu árum, steig fram og hóf að vara við henni af öllu sem hann átti til. 

Allt saman afskrifað af hinum almenna manni og hinni almennu elítu sem dulspeki og samsæriskenningar!

Ljóst var að mann-kynið var sturlað.

Ári eftir að farsóttinni var lýst yfir, þegar byrjað var að þvinga allt mann-kynið með ráðum og dáð í eitursprauturnar, var lögum og reglugerðum á vesturlöndum breytt eins og stjórnmálin komust upp með, svo hægt væri að beita þessum sprautum því sem næst með skylduákvæðum.

Við sem vildum ræða þetta og sérstaklega þau fáu okkar sem reyndum að ræða lögin, vorum allan tíman og erum enn, rangsnúnir samsæraútskýrendur. Aldrei kom fram hjá neinum í meginstraumnum nokkur krafa um sönnun á téðum vírus, og enginn krafðist sönnunar þess að grímur hefðu einhver áhrif á smithættu.

Dr. Denis Rancourt (fyrrv. Prof.) er einn vandaðist fræðimaður vesturlanda. Hann lætur ekkert frá sér sem hann getur ekki bakkað upp með skotheldri tölfræði. Hann steig fram snemma árs 2020 með mjög vandaða umfjöllun um grímunotkun. Ef grímunotkun dregur úr smithættu, þá er það svo til ómarktækt, í mesta lagi 0,2 prósent. Fleiri kannanir birtust á Covid tímanum sem staðfestu þetta.

Enn í dag, neitar elítan að ræða hvað gerðist. Almenningur sem lét sig hafa ofbeldið, fylltist covid þreytu í lok sprautuherferðar og enn í dag vill ekki lesa greinar, horfa á myndskeið, eða eiga samræður um glæpinn sem var framinn á þeim.

Margir meðal okkar, rangsnúna fólksins, hafa skrifað eins mikið um málið og þau ráða við eða hafa getu til, eða skilning á. Enn hefur enginn sannað að vírusinn sé til. Afleiðingar sprautunnar eru gríðarlegar, enginn utan rangsnúna hópsins vill ræða það.

Ráðstefnur eru þó haldnar. Nú á dögunum var haldin ráðstefna í Rúmeníu. Í vor var haldin lítil ráðstefna af þingmönnum hjá Evrópusambandinu, Ron Johnson öldungadeildarþingmaður í Washington hefur haldið tvær ráðstefnur og nú nýverið stutta fyrirtöku. Á öllum þessum fundum koma fram vísindamenn sem hafa rekjanlega og þétta fræðimennsku í reynslupakkanum, allt saman málsmetandi fólk sem ekki leggur nafn sitt við fúsk.

Allir hafa þessir aðilar sannað að vísindin sem stjórnkerfin "vottuðu" eru fúsk, lygar, rangsnúningur, ofbeldi, þvinganir, þagganir og já; þjóðarmorðshyggja.

Rakst áðan á 26 mínútna klippu af ræðu Dr. Rancourt, í Rúmeníu nú fyrir fáeinum dögum, þar sem hann sannar með skotheldri tölfræði, að engin farsótt var á ferðinni og að sprauturnar eru að drepa milljónir fólks.

Enginn mun horfa á þetta, meðal almennings, en margir meðal Antivista. Enginn áttar sig á aðal atriðinu. Morðvargarnir sem nú stjórna vesturlöndum - og víðar - eru ekki hættir og ekkert hefur hægt á þeim eða slegið á puttana á þeim. Þetta fólk ber beina ábyrgð á stríðinu í Úkraínu og yfirstandandi þjóðarmorði Zíonista (sem þykjast vera gyðingar) í Palestínu.

Ef þú skilur þetta, flýðu, ef þú átt börn; ekki bíða boðanna!

Þetta er það sem allar helgar ritningar mæla með. Þegar viðurstyggð eyðileggingarinnar skellur á siðmenningu þinni, ekki bíða þess að skelfingin slaki á, ekki trúa því að Antivistar geti talað um fyrir Elítunni eða vakið Almenning og þannig endurreist siðmenningu.

Flýðu eitthvert þar sem enn er siðmenning, og flýðu strax.

Mannhörmungar af því tagi sem hófust 11. mars 2020, eru meinfýsni og morðhyggja, og ballið er rétt að byrja. Ekki reyna að bjarga þeim eigum sem þú ert í skuld fyrir hvort eð er, eða atvinnu sem er háð félagsþrýstingi hatursfullra og leirmenna.

FLÝÐU. Komdu börnum þínum í skjól.

 

Fleira frá Dr. Rancourt

Á persónulegu nótunum:

Nú er Elítan búin að setja lög og þau komin í virkni; allt bensín skal innihalda Etanól sem eyðileggur bílvélar. Til eru lönd sem enn hafa siðmenningu, EEsland er ekki eitt þeirra.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Leifur Jónsson

Orð í tíma töluð. Hvernig væri best að snara frasanum "mathematical gymnastics" yfir á íslensku.

Leifur Jónsson, 28.11.2023 kl. 12:13

2 Smámynd: Helgi Viðar Hilmarsson

Ég las danska skáldsögu í þessu mánuði þar sem sögusviðið er München haustið 1942 þegar stríðið stóð sem hæst. Við lestur þessarar bókar varð mér ljóst að nazisminn var í raun trúarbrögð sem samin voru fyrir fólkið til að elítan gæti rekið þýskan imperíalisma í samkeppni við Sovétríkin og þeirra trúarbrögð, en þau myndu yfirtaka Evrópu með bolsévisma ef ekkert væri að gert. Trúarbrögðin þjónuðu því hlutverki að fá fólkið til að sætta sig við ógnarstjórn og stríð sem það að öllu jöfnu vill ekki. Allur þorri fólks lét segjast en þeir sem hlustuðu á BBC eða viðruðu skoðanir sem ekki voru yfirvöldum þóknanlegar voru sendi í endurmenntunarbúðir. Þetta var í raun helsjúkt þjóðfélag sem komið var viljandi á til að gera djöfulganginn sem stríðið var mögulegan.

Helgi Viðar Hilmarsson, 29.11.2023 kl. 14:17

3 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

Takk fyrir innlitið, Leifur og Helgi Viðar. Ég hef engu við að bæta. Nema kannski einu; ef enginn maður hlýðir öðrum manni, mun enginn maður leiða neinn mann í ógæfu. Og ef enginn ræðir samsæriskenningar, mun óprúttið fólk yfirtaka öryggiskerfin og ríkin.

Guðjón E. Hreinberg, 29.11.2023 kl. 17:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband