Útskýring tveggja rabbína á mismun Zíonisma og Júðisma

Fólk skilur ekki alltaf á muninn á áróðursinnprentun og veruleika, hvernig vörumerking getur markaðssett rangsnúning og lýgi annars vegar og sögulegar staðreyndir hins vegar.

Júðismi eru trúarbrögð, Zíonismi er Þjóðernis-sósíalismi (sama og fasismi). Hversu margir í nútíma okkar álíta sig vera kristna en lesa aldrei ritningarnar? Kristni er ekki þjóðerni, frekar en Júðismi.

Að styðja Zíonisma, er bókstaflega hatur á Júðisma, því Zíonismi er falsjúðismi sem rænir öllum stríðsskaðabótum Þjóðverja fyrir morðæði þýskra nasista í annarri heimsstyrjöldinni.

Júðismi bannar gyðingum stofnun þjóðríkis og kennir að Júðar séu enn í útlegð, og það er ekki túlkun, heldur hreinræktuð biblíurýni. Þá má bæta við að kristnir zíonistar hata sinn eigin Jesú, því þeir setja þjóðríkið Ísrael ofar sínum eigin messíasi.

Júðismi bannar hernað af því tagi sem Zíonistaríkið hefur starfrækt frá fæðingu sinni 1948.

Hræsni er farsótt okkar heims.

Hver sannaði vírusinn? Eikkur? Ef þú fórst í sprautuna hlýturðu að hafa kannað málið? Eða er veröld þín byggð á sandi úr áróðursvél og fóðruð á innprentun?

Að þessu sögðu, þá er enginn á móti Ísraelsríki hér, þjóðríkið er þar sem það er, mannað þeim borgurum sem það er mannað, en glæpir Hitlers 1943 réttlæta ekki glæpi Netanyahu 2023, en Ísraelsríki er ekki gyðingaríki heldur þjóðernissósíalískt Zíonistaríki.

Að fordæma glæpi einhvers, er ekki það sama og að fyrirlíta eða hata viðkomandi, heldur gagnrýni á glæpi hans. Sjálfur er ég mikill aðdáandi Júðisma, svosem allir vita, og þreytist aldrei á að læra af frómum rabbínum dýpri skilning á helgum ritningum, biblíunnar.

 

https://rumble.com/v3v87lk-judaism-vs-zionism.-rabbi-explains.html

 

https://www.youtube.com/watch?v=QKRSiqBWqNM

 

Bók Rabbi Yaakov Shapiro - The Empty Wagon á Amazon:


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helgi Viðar Hilmarsson

Nasisminn er trúarbrögð sem þýsk elíta sauð saman til að geta selt þjóð sinni þýskan imperíalisma. Adolf var "talking head" fyrir þessa stefnu og síðar einvaldur sem réði ekkert við þau völd sem honum voru fengin og hann hrifsaði til sín.

Helgi Viðar Hilmarsson, 13.11.2023 kl. 08:49

2 Smámynd: Helgi Viðar Hilmarsson

Zionisminn er líka trúarbrögð utan um imperíalisma rétt eins og Íslam og Nasismi.

Helgi Viðar Hilmarsson, 13.11.2023 kl. 09:14

3 Smámynd: Helgi Viðar Hilmarsson

"Farið og gerið allar þjóðir að lærisveinum ..." er seinni tíma viðbót.

Helgi Viðar Hilmarsson, 13.11.2023 kl. 09:58

4 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

Góðir punktar, Helgi Viðar, bestu kveðjur.

Guðjón E. Hreinberg, 13.11.2023 kl. 11:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband