Athugasemd um vígahnetti

Ég hvet lesandann að lesa aftur tengda frétt og telja í huganum hversu margar fullyrðingar eru í henni um hvað var á ferðinni, hvernig það hegði sér, hverrar náttúru það sé, eða hæð þess, fall og þvíumlíkt, sem engin leið er að sanna með nokkru móti.

Í fáein ár hafa Suðurnesjamenn beðið eftir annarri raflínu, en ekki fengið, ýmist vegna þess að monningar fara í embætta-innviði og hins vegar vegna þess að bangsaborgarar hér og þar fara offörum yfir að ekki megi hafa raflínur á staurum því það skemmi útsýnið við morgunverðarborðið.

Þá hefur ekki hvarflað að nokkrum manni, hvorki í eldgosinu 2021 eða eldgosinu í sumar, þegar allir plussborgarar landsins fóru í labbitúr að stórhættulegum gosstöðvum og eldsprungum, að kannski væri snjallt að byggja lítið hús suður með sjó sem gæti hitað vatn fyrir vara-hitaveitu.

Nú kemur vígahnöttur CIA* og kemur af stað hræringum beint undir Bláa Lóninu, - svo hressilega að hann brennur yfir og hrapar - við aðra af tveim holóttum rol[l]ugötum til Grindavíkur og undirbýr eldsumbrot sem munu slökkva á hitaveitunni og gætu með jarðskjálftum gert Suðurnesin rafmagnslaus.

Vonandi er húseign þín innviðauppbyggingatryggð.

... og við vitum að fjárausturinn í loftskattana og innflutning á vinstra-mannsali mun ekki fara til öryggisinnviða á Suðurnesjum. Loks biðst ég afsökunar á að hafa minnst á að Reykjanesið hefur verið virk eldstöð í rúm tvö ár og elíta* landsins stundað sjálfsfróun allan tímann, nýbúin að leggja efnahag landsins og heilsufar þjóðarinnar í rúst, fyrir hönd Bill Gates og Genaþurs í Vaxmýrinni.

Flýðu land, eða vertu fíbbl* eins og hinir.

 

* Minni á að elítan er skósveinadeild Elítunnar.

* Sannaðu að það sé ekki til nein veðurvél eða jarðhræringadeild hjá heimsveldinu, áður en þú glottir yfir hvort ég trúi því eða ekki; sannaðu sömuleiðis að þú hafir ósprautaða kímnigáfu. En án alls gríns, allar fullyrðingar tengdrar fréttar eru tilgátukenningar sem elítan viðurkennir sem staðreyndir, ah, það er hið sama og samsæriskenning eþaggi?

* Fíbbl er sá sem fíbblaður er í allra augsýn og er síðastur til að sjá það.

 


mbl.is Vígahnöttur náðist á upptöku af Svartsengi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband