Föstudagur, 3. nóvember 2023
Klassísk froðuspilling bákngímalds og menntastélsgína
Ef "lýðveldið" væri ekki eign fámennrar klíku - eða nýaðals - þá væri útgefinn einn opinber staðall fyrir öll opinber laun og kosið um í þinginu hver þau væru, en nei; Quislínga ríkið - sem er afleiðing af tvennum staðfestum ríkisránum - er fjós; sem mergsýgur þjóðkúna þegar nytin er búin, og öll "innviða uppbygging" er fínyrði fyrir risastóra fljúgandi byggingu (Douglas Adams) firrta öllum öðrum veruleika en eigin messuhöldum.
Lestu tengda frétt aftur - þrátt fyrir flókinn texta í löngum orðum - með þetta í huga ... og síðan máttu kommenta. Baulaðu svo borgarinn minn, því bráðum færðu mjölið, og síðan ferðu auðfús á mjaltabásinn, og þú munt skamma hinar borgarakýrnar sem koma seinar ...
Loksins kominn með heiti fyrir Intelligentsia, menntagínur á virkum dögum ... og menntastélsgínur á föstudögum.
Elfa hafði betur gegn ríkinu og fær gögn afhent | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Góður Guðjón, -þarna er sjálftöku púkanna á fjósbitanum, og tilberum þeirra, hárrétt lýst.
Magnús Sigurðsson, 3.11.2023 kl. 21:46
Takk fyrir, Magnús, ég óttast nú orðið, þegar ég skrifa svona að fá heimsókn frá löggunni. Hlýleg orð slá á kvíðann.
Guðjón E. Hreinberg, 3.11.2023 kl. 22:51
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.