Kominn með þýðíngu á "spell break" [djúp færsla]

Töfra mölvun, töfra rof, töfra mjölnir, töfra-úrlausn, töfralausn, töfrabrot. Einfalt - og má snúa á marga vegu samanber herkænsku og stríðstækni fyrir "Strategy." Veit að sumir höfðu þetta á gerðarformi (Agenda), og bíð spenntur hvort betri snúningur komi á þetta.

 

 

Úr einu í annað. Haustið 2021 fórum við í djúpa greiningu á lögmæti 79* stofnanakerfi Sameinuðu Þjóðanna, sögu þess og forsögu.

Í vikunni voru vinsælar fréttir í viðræðum á meðal fólks, hvaða ráðherra sagði hvað um hvaða ráðherra og hvað enn einn ráðherrann sagði um viðbrögð þeirra þriggja. Þetta er spuni og þú sérð það best á því hversu margar samtengdar og samtvinnaðar fréttir voru um þetta.

Þegar slíkir spunar eru í gangi, þá er annað sett undir mæliker.

Til að mynda hef ég spurt fólk sem minnist á gróuöguna, hvað veistu um Hatursgospel heilagrar Katrínar og þau vita ekkert um það. Fólk veit alls ekki neitt um hvernig vinstri-öfgar hafa yfirtekið Íslenska Lýðveldið frá 1944 og er nú að hefja allsherjar heilaþvott og refsilöggjöf gegn þeim tveim prósentum þjóðarinnar sem mistókst að heilaþvo í skóla, eða lyfja upp vegna platveikinnar ADHD eða efast um góðvild rörSýnar og skRúvu.

Enga frétt hef ég séð hérlendis um að Hillary Clinton - stóra systir Reykfjörð og Jakobsdóttur - lýsti því yfir á dögunum að setja þyrfti kjósendur Donald Trump í opinberar endurmenntunarbúðir. --Hruns-yfirtakan 2008

Nú vitum við að 82 prósent trúir í blindni og 16 prósent eru antivistarnir sem vilja fínstilla lýgina, og aðeins 2 prósent eru enn lifandi hugir en ekki steingerðir. Þetta er auðveldlega mælanlegt og hefur það algrím verið útskýrt í þaula í Arkívinu. Þegar fólk viðurkennir að vita ekki af Hatursorðalögunum, skiptir það samstundis úr einu í annað, því þau vilja ekki vita þetta, frekar en hver sannaði vírusinn.

Fólk er skrítið, þeir sem vildu ekki vita neitt um Lygarapláguna eða Eitursprautuna, í blindri trú, vilja ekki ræða hana í dag en nú af skömm. Það heitir siðblinda. Þeir sem temja þessa siðblindu og spila með hana, eru siðlausir, en þeir semja þó reglurnar. En reglur siðferðis (Morality) eru ekki endilega byggðar á lögmæti* (Lawfulness, Covenant) eða siðfræði (Ethics) og þegar siðrof ríkir yfir ástandinu, hvað þá?

Ef sá sem bundinn er í þrældóm, vill ekki viðurkenna að hann sé hlekkjaður, mun hann aldrei ræða hvort það sé réttmætt, og þegar lögmæti og forsjón sópa heimskerfi hans til hliðar, mun hann ekki flýja í tæka tíð. Nú er þetta að gerast, og ástandið er frumspekilegt, og hvert flýrðu í þeim heimi?

Nú vita margir að WHO hefur leikið hlutverk T4 stofnunar Nasista síðustu misserin, og að bæði kynþvottur barna og þjóðaútskiptingar (Culture replacement) með "hælisleitenda" holskeflum, og ýmiss heilaþvottur kemur frá UNESCO og UNICEF, og að t.d. IMF lék lykilhlutverk við að þvinga skuldugar þjóðir til að hlýða Covid helförinni.

Þá skulum við ekki dirfast að ræða BIS sem trjónir yfir þessu öllu og nær enginn veit að er til.

Þá er vitað að sjálfstæðar hugveitur á borð við Davos Heims-efnahags ráðið (HER) - sem er ekki hluti kerfisins en hefur opinbera þátttöku samninga við það - hefur innviklað sig í allar helstu mennta- og ríkisstofnanir og fjölmiðla, ásamt og ríkisstjórnum vestrænna ríkja undanfarna tvo áratugi og er í dag helsti spilarinn í ritskoðun og útskúfun á rökréttri orðræðu á vesturlöndum, og loks að IPCC stofnunin ber ábyrgð á Loftslags rangsnúninginum, og svo mætti lengi telja hvernig þessar 79 ráðdeildar stofnanir hafa farið 666falt út fyrir upprunalegan ramma sinn.

Mismeðvitaða almenna vitundin (Collective Conscious and Collective Unconscious) sem hefur kerfisbundið verið heilaþvegin allar götur síðan 1941 um góðvild (Altruism) og nauðsyn þessa alþjóðabákns (Global UN System), er smátt og smátt að átta sig á því að þessi maðkétni Babýlonsturn sem enginn þorir eða má gagnrýna er gegnheill viðbjóður.

Eins og Voltaire sagði; auðkenndu hvern þú mátt ekki gagnrýna og þú finnur út hver stjórnar þér.

Í maí á þessu ári fór Dr. David Martin ítarlega ofaní - m.a. í trengslum við fyrirtekt hjá Evrópusambandinu - hvernig mafían sem stofnsetti báknið setti í alla stofnsamninga þess (og í sumum tilfellum stjórnarskrár) að ekki mætti lögsækja þær fyrir rangsnúning eða glæpi né heldur starfsmenn þeirra, og allar þessar stofnanir skattleggja þjóðlöndin og engin starfsemi þessara stofnana greiðir nein opinber gjöld innan þeirra ríkja sem þær starfa.

Slíkt er glæpur, og allsherjar siðrof, ef þú skyldir ekki vita það eða þora að benda á það. Nýlega hófu aðilar í Valdai, einnig hjá Shanghai Cooperation Organization - og mörgum öðrum sambærilegum ráðstefnum þar sem tugir þjóðarleiðtoga sem þrá að losna undan arðráni* Nató/Esb mafíunnar eru að ræða, hvað? Að gera þurfi allsherjar uppskurð á eðli og samsetningu 79 alþjóðabáknsins og ekki síst Öryggisráðinu sem sé bæði staðnað og úrelt.

Viti menn, meirihluti þjóðríkja heimsins er sammála þessu.

Eins og Jósúa Maríuson sagði eitt sinn; borga börn Elítunnar skatta? Þá er Dr. Martin mörgum að góðu kunnur fyrir rannsóknir hans á ýmsum rekjanlegum glæpum - lögbrotum - í tengslum við Covid rangsnúning síðustu ára, sem skrifa mætti langa ritgerð um.

Scott Ritter er mörgum að góðu kunnur fyrir afburða greiningar, auk þess sem hann vann bæði fyrir Pentagon og SÞ við vopnarannsóknir víða um heim. Hann kom fram með ítarlega útskýringu, í viðtali nú á dögunum, á hvernig þessar orðræður um SÞ-báknið eru að eiga sér stað og hvaða hugleiðingar séu í gangi víða um heim.

Ekkert af þessu kemur fram hjá rörSýn og skRúvu, hvernig mestöll heimsmenningin er að snúa sér frá dáleiðslu og heilaþvætti tveggja kynslóða. Við höfum lengi bent á, að Íslendingar hafa fyrsta flokks aðstöðu til að vera deginum á undan öllum hinum*, en við erum að lenda í þeirri aðstöðu að vera eina þjóðin í heiminum sem enn trúir á Vírusinn, Sprautuna, Loftslagslýgina, Nató og ESB: sem er stórfurðulegt því það er ekki okkar náttúra að vera myndastytta.

Nema ÍsQuislíngar segi annað, en þeir vita best og ástkær ríkisstjórnin er vitur og allar mínar hatursöfgar eru ákall veiks manns um hjálp. Bara svo það komi fram, ef ég næ ekki að flýja í tæka tíð (en ég glími við heilsuvanda sem hamlar flótta).

Hatursgospelið er dýpsta viska allra tíma.

... ég skil ekki viskuna, en það er náttúra góðra framsýnna trúarbragða, að finna upp hjólið sem allir hafa beðið eftir án þess að vita það.

Ég er ekki sá fyrsti í heimssögunni til að fyrirlíta Sameinuðu Þjóða bákn 79 stofnana. Reyndar á ég leikmanninum (Catholic layman) Cornelia Ferreira margt að þakka, því fyrirlestur frá henni vakti áhuga minn á að rannsaka UNESCO fyrirbærið, sem aftur kom mér á sporið að gramsa víðar, og rýna dýpra.

Cornelia Ferreira er ekki vel þekkt en hún er einn af þessum fræðimönnum sem grefur djúpt hér og þar, vönduð í orðum og merkingum, og fer ekki með fleipur. Má margt læra af fyrirlestrum hennar og skrifum, en hún er ein af þeim sem týndust í hafi 2019, þegar sannleiks antivistarnir voru smíðaðir með áhugaverðum* launhelgum.

Sem fyrr segir, ég er ekki sá fyrsti til að sjá þetta skítahaughús sem hjúpar sig glitbúningi, fyrir það sem það er, og margir hafa rýnt það heimspekilega, menningarlega og merkingarfræðilega (guðfræðilega), en ég er sá fyrsti sem greindi lögmæti þess og skar niður muninn á allsherjarþingi sameinaðra þjóða annars vegar eða vettvangi til þjóðréttasamninga (Treaties) hins vegar, eða efnissviðs (Scope), eða réttmæti hinna stofnananna 78.

Töframölvun, eþaggi? Þegar álaghjúpurinn leysist upp eins og morgundöggin, þegar Mjölnir hefur þeyst í keiluflugi um svörtu ský álaganna og snúið aftur í höndina sem vissi ekki að hún hafði fleygt honum af stað, er himinninn heiðskýr yfir þar sem drullan áður kraumaði örugg í duldinni þeirra skýja sem undan þeyttust fluginu.

Snjóboltinn er lagður af stað niður hlíðina, og það hófst í apríl 2014.

Enn úr einu í annað, eða ein af höfuð-áttunum! Já, þær eru tvöfalt fleiri en fjórar og það er í heiti þeirra; --Sleipnir.

cool

Förum í annan snúning.

Sjöundi kafli Daniels, og stigmögnun illskunnar í tákni fjögurra dýra.

Fyrst kemur tvívængja valdakerfi þar sem Elítan (af goðum fædd) og Goðin voru vængirnir en Grimmd og Þrældómur afleiðingarnar, sem valtar um allt, og hvert tekur við af öðru, en öll af sama kyni.

Þá kemur óseðjandi bjarndýr Rómverskra laga, Grískrar heimspeki og Semítískrar siðfræði eða heimsveldi afls og rangsnúnings.

Þriðja dýrið er heimssýn Eingyðis kerfanna fjögurra; sem fæddu af sér siðfræði en allar breittust í skurðgoðadýrkun.

Þá kemur fjórða dýrið, járnmaskína tíu (Sefirot, þ.e. allir) horna og kónga, sem í rangsnúningi orðaflaums dulbýr grimmd sína í formælingum Efnishyggju, Valdhyggju og Félagshyggju)

Loks kemur uppgjörið, hinn guðdómlegi vitnisburður.

Bottom læn; framangreind túlkun bendir á að þetta er ekki línulegt heldur spíralskt, og að sýnir nota frumspekileg tákn til að kenna þér að þekkja mynstur og virða leyndardóma. Algengt er meðal þeirra er rýna spádóma að þeir vilja klína efnishyggjulegri bókstafstrú á frumspekina, þetta dýr sé Þýskaland, annað dýr sé Ensk-Ameríska veldið og svo framvegis.

Enginn munur er á efnishyggju þeirra er trúa á biblíuna eða wikipedia, því þeir rýna bókstafinn en ekki Logos-ið, hvað þá fimm skref frá sýn til myndar (sem við höfum vandlega gert skil í mæltu máli og upptökum).

Veruleikinn virkar ekki þannig, og þú veist ekki að veruleikinn sem þú trúir á; er túlkun.

Ritningar eru frumspekileg viska (Metaphysical wisdom), sem er hættulegt að breyta í bókstafstrú og efnishyggju (eða félagslegan marxisma). Varist t.d. menn (karla og konur) sem nota ritningar til að temja söfnuði, og notið þær frekar sem einkabréf frá Guðinum til þín. Reynsla þeirra sem hlíta þessu er að ritningar breytast frá ári til árs og áratug til áratugs, eftir því sem þroski okkar færist nær því að vera á grúfu í mölinni (bæn, iðrun, vitnisburður, fyrirgefning).

Endalaust lendir maður í að lesa þessi bréf þar sem undirbækur ritninganna og hinir ýmsu kaflar sem maður hefur lesið oft, og bæði skilið upp á nýtt, eða einhver opnað manni betri skilning á, birtast manni eins og síðurnar hafi umbreyst nóttina áður. Sú yrðing að ritningar séu lifandi orð, er ekki slagorð, en þær eru allar best rýndar í einrúmi (og án egóbundins gáfnahroka) og best bornar saman milli vitunda mannshugans í gagnkvæmri virðingu fyrir því hvernig líf þeirra vinnur með skilning hvers og eins er rýnir.

Ein fyrsta sýn Daníels, lýsti t.d. heimsmenningunni fullkomlega, þar sem risinn frá steinöld, um járnöld, og bronsöld og silfuröld og loks húmaníska gullöld (tilbeiðsla mennskrar rökhyggju og endurreisnar efnishyggjunnar) reisti hið stórkostlega líkneski meitlaðrar mann-kyns-sögu og launhelga, sem mölvaðist mélinu smærra og breyttist í duft, því  lítill hvítur* steinn losnaði úr fjallshlíð og valt niður á fætur hans.

Árið 2019 velti ég því upp í Arkívinu, hvað heimskerfi föllnu englanna kæmu með næst, því búið væri að mölva svo marga töfra þeirra. En fyrr það ár hafði vitrast að Guð myndi fjarlægja náð raunsæis frá því mannkyni sem skirrðist við að bekenna vitjunartíma sinn.

Góðar stundir.

 

Ath. Greinin var hripuð niður með hraði, og höfundi vafðist fyrir að slípa og hreinsa. Beðist er velvirðingar á óhöppum í stafsetningu og orðaskipan. Þá biðst ég afsökunar á hversu mikið af ástarlögum hafa fylgt skrifum mínum undanfarið, er að mölva töfra sem hjúkkurnar véluðu á mig í fyrra, geri það með dulhjúpun.

 

 

* Megir þú lifa áhugaverða tíma, sagði Kínverskur vitringur og glotti.

* Það er stirt að nota 79 alþjóðabáknið eða Sameinuðu Þjóða báknið 79 - en ég vel að hafa það stirt því mjög fáir gera sér ljóst að þetta 79 stofnana bákn er meira en stofnun Sameinuðu Þjóðanna "við one Rockefeller street" í New York, og að allar eru þessar stofnanir sjálfstæðar hver frá annarri en ekki ein sett yfir hinar 78. Fólk vill ekki vita þetta, en ef sá sem stjórnar þér er vitund þinni dulinn, hvernig veistu þá hvað hugur þinn er?

* Að steinninn væri hvítur, kemur ekki fram í sýninni, liturinn er settur af greinarhöfundi sem glottfengin skírskotun til leyndardómsins um hvíta steininn, sem Erkiengillin Mikael minnist á í Opinberun Jóhannesar - en ég minni reglulega á þennan áhugaverða leyndardóm sem Guð hefur ekki sent vitrun til að mölva leyndarhjúpinn yfir. En allir vita að spádómar margra s.s. Daníels og Jóhannesar voru frambornir þannig að merking þeirra yrði opinberuð síðar, og þannig hefur það verið samanber Ljósenglana sjö og Innsiglin sjö, og eins er með risann með gullhöfuðið.

* Íslenskt hugvit er lengra á undan samtímavitund heimsins en þig grunar, og við höfum rakið það vandlega í Arkívinu. Þó þú hafir tekið þátt í að setja ljósið úr norðri undir mæliker, og vitir það ekki, þá geta töfrar mælikera mjölvast. Oft er sá sem skilur dýpst, grunnhyggnastur meðal grunnhygginna, af einmitt þeirri ástæðu.

* Löglegt en siðlaust, mælti Vilmundur hér um árið; við bætum við löglegt getur verið ólögmætt (Legal can be Unlawful) saman ber muninn á siðferði og siðfræði; ef enginn veldur merkingarfræði þá hefur Sapiens Sapiens breyst úr mann-veru í mann-apa.

* Varðandi arðrán; heimsmarkaðsverð á Úran er 200 USD á kíló. Níger hefur hingað til fengið 8 USD á kíló frá Frakklandi.

 

 

Ítarefni

 

Fyrir þá sem ekki fatta það ennþá, en Regnbogafáninn er áskorun vegna Nóaflóðsins. Elítan sem stjórnar og aldrei er rætt við, trúir á dulheima en ekki þá heimsmynd sem þú ert vélaður (eða töfraður) með.

Öll ritskoðun (universal=catholic) hnattrænna kommúnista síðan 2013, snýst um eitt og aðeins eitt. --Endurreist Þjóðveldi (nyttland.is)


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband