Vá - eða hvað með Banderistuna í ríkisstjórn Kanada?

Viðhengd frétt minnist ekkert á þegar Christia Freeland fagnaði nasistafánum og öðrum slíkum táknum á almannafæri í fyrra, aðeins örfáum vikum eftir að hún afnam borgararéttindi samlanda sinna í Kanada, og lokaði bankareikningum þeirra sem hún er ósammála.

 

 

Ekki er minnst á að afi hennar barðist fyrir Þjóðverja* í síðari heimsstyrjöld (sem MBL uppnefnir "seinna stríð" sem ég veit ekki hvað er). Þá fer fréttin ekki rétt með hlutfall þeirra í Úkraínu sem annars vegar börðust í liði með Þjóðverjum og hins vegar í liði með Sovétríkjum, og ekki er minnst einu orði á Stepan Bandera og hvað hugmyndafræði hans er, eða að sú afbakaða nasistaútgáfa er aðal hugmyndafræði ríkisstjórna Úkraínu og Kanada þessa dagana.

Nei, upplýsingar skipta engu máli. Ef þú rýnir hvernig skólakerfi - og fjölmiðlar - ala börn upp í dag, þá er í raun furða að fólk í kringum okkur tali yfirleitt tugumál og kunni einhverja framkomu, því hugur fólks er bókstaflega strokaður út. Því meir sem ég tala við ömmur og afa í nágrenninu, og inni eftir hvernig barnabörn þeirra eru alin upp eða haga sér, kemst ég að þessari niðurstöðu.

Minnir að einhver hafi sagt; fyrst deyr menningin, síðan innfellur siðmenningin, og þá upphefst glundroði rofinnar rjúkandi tungu.

 

Að lokum minni ég á að allar öfgaskoðanir eru aðeins tákn þess að ég er hatursfullur hægri-öfgi - sem skólakerfinu mistókst að leiðrétta vegna vangerðar minnar en ekki algríma þess - og ræð ég ekki við þessa röskun; að almáttug og vitur ríkisstjórnin banni slík andleg veikindi, verður vonandi til blessunar og heilunar. Allar færslur skal lesa sem ákall um hjálp, og almenna spennulosun í veikindum. Vonandi brýt ég ekki hatursguðspjallið, en verði svo, minni ég á fyrirvara þennan.

 

Staðreyndin er sú, að Elítur vesturlanda síðan 1940 til dagsins í dag eru sekar um þúsundfalt stærri, umfangsmeiri, og grimmari glæpi en einhverjar áttatíu ára gamlar draugasögur af átökum í Evrópu fyrir tveim kynslóðum. Ekkert þeirra skrípa sem enn notar Hitler og Nasista til að stimpla annað fólk, veit hvað sú hugmyndafræði er, eða hvernig hún er útfærð í nýjum skrúðum á vesturlöndum allar götur síðan í maí 1945. Okkar eigin lygara- og hræsnismenning, er dáin og átti skilið að deyja, enda skirrðist hún við að bekenna vitjunartíma sinn. Við erum iðrunarlaust pakk, ýmist haldið illum öndum eða samlagað, og það er hin náttúrulega framrás að við verðum strokuð út, að við erum að stroka sjálf okkur út, er fyndið, því andi menningar okkar er farinn og bygging siðmenningar okkar er tóm og því innfallin. Að jafnvel í miðju bálinu heldur fólk að ekkert sé að frétta af eigin ástandi, er sönnun framangreindra öfgafullu hatursfullu rangskoðana.

... og viti menn, ÍsQuislíngar ætla sér að setja lög um hvað má segja og hvað ekki varðandi téð átök fyrir áttatíu árum, bíddu, það eru að koma lög um hvað má segja og hvað ekki um þeirra eigin þjóðarmorð! !

 

Góðar stundir

 

* Enginn á vesturlöndum gerir enn greinarmun á Nasistum og Þjóðverjum þegar minnst er á síðari heimsstyrjöldina - eða aðra heimsstyrjöld. Enda nákvæmni og siðferði eitthvað sem skiptir engu máli lengur.

 

---

 

Langar að endurbirta hér, færslu sem ég reit á FB í gærkv.

"

Davos mafían er byrjuð að átta sig á því sem við spáðum - í desember 2021 - áður en átökin hófust í Úkraínu; og eru nú í smáum skrefum (og teikn á lofti einnig í Washington), að þeir vilja finna afturábak gír út úr átökunum, og blíðka Rússa. En það er of seint, því spádómurinn stendur sem bætt var við greininguna í feb/mars 2022, þegar átökin hófust.
Valdamafíurnar á bak við Pútín líta svo á að öryggi Rússlands sé í húfi nema ESB og NATÓ verði molað í sundur. Eina leiðin til að stöðva það sem nú er í gangi, er að skipt sé um valdamafíur í öllum ríkjum ESB og NATÓ og það nú í vetur, og raunsæir leiðtogar valdir í þeirra stað.
ÉG MINNI á bölvættinn sem við spáðum að myndi rísa ef sprautu herferðin myndi beinast gegn börnum og unglingum; sá vættur er fullrisinn og við hann verður ekki samið. Eina leiðin til að friða slíka bölvætti er fullkomin iðrun bæði valdafólks og fjölskyldufólks sem tóku þátt í glæpnum.
Núverandi Alþjóða (UN/Davos) mafía sem stjórnar heiminum verður annaðhvort dregin fyrir þjóða[r]morðs réttarhöld, eða núverandi heimsskipulag verður lagt í rúst.
Þetta er alvöru.
"Elítan" "okkar" heldur að hún geti startað stríðum og þjóðamorðum eins og sumir fara á djammið, það virkar því miður ekki þannig. Stríð eru ekki leikfang. Að meðhöndla fólk eins og styttur - þó það hagi sér eins og leirmenni og bergmálsdúfur - er ekki lögmætt. Kommúnistar bera ekki virðingu fyrir sjálfum sér, hvað þá þér, og ef þú leyfir þessu geðsjúka fólki að fá vald yfir þér, eyðileggja þau allt sem fyrir þeim verður.
Ef þig vantar sönnun, líttu þá til sögu þekktra kommúnistaríkja, Sovétríkin voru rústir eftir kommúnismann þar, Kína er það nú þegar, Kúba er ruslahaugur, Kampútsea var lögð í rúst, Víetnam eru fangabúðir. Vesturlönd eru komin á sama stað.
"
 

Að lokum; ég sé afleiðingar af sprautunum, bókstaflega útumallt, og í fréttum einnig, en ég sé hvergi neina umræðu neinsstaðar um það. Jú, stöku Antivista gúlli reynir, en gímaldið (Abyss) hefur gleypt glæpinn. Það mun að lokum gleypa þig. Vonandi sleppa þeir sem iðrast. Það er vonin sem boðuð var fyrir 20 öldum, rúmum, reyndar mun fyrr. Tímalína menningar okkar, er stutt, fyrir þeim sem spanna sín æviskeið í hundruðum alda. Sál þín gerir það, en hún er eitruð og þarf hreinsun og þú skilur það ekki, bæði af eigin þverúðgi, einnig vegna þess hvernig efnisfarvegir okkar eru staðfærðir (Manifest) og kótaðir (Encoded).

Hindúar tala stundum um karmískt endurfæðingar hjól, eða svinghjól, sem spanni siðmenningu. Sumir segja þá telja slíkt í 42 þúsund árum, ég held að þeir telji það í 4200 árum; og það stemmir. Síðasta endurfæðingarhjól - frá Nirvanískri heimssýn - var árið 2105 f.Kr (1656 AM), eða fyrir 4128 árum - sem stemmir við ýmsa útreikninga Bibbunnar. Við höfum áður fjallað um tíma heiðingjanna sem líklega líkur árið 2097, eða tveim árum síðar ... bwahahahaha.

Sýnir ljósenglanna sjö, sem gáfu þér tuttugogeina heimssmynd, eru allar samóma (Resonate). Skondið að upplýsingar um það voru fyrir augum okkar allra síðan 98 AD og enginn sá það fyrr en sýn var send til að ljúka því upp 2010 AD. Já, það er skondið, því þegar þú skilur þá upplúkningu, opnast þér kort yfir völundarhús (Labyrinth) sjöþúsund spegla.

Veröldin er ekki það sem bókstafstrú Wikipedia segir þér að hún sé, labbakútur.

Afsakið, aftur, veiklundaðar rangskoðanir.

Manstu þegar Íslenskir vitsmunaþingmenn (Intelligentsia congress) brutu stjórnarskrá Íslenska Lýðveldisins og buðu Úkraínskum nasista/banderista leiðtoga að halda þrusuræðu í Ríkisþinginu við Austurvöll sem uppnefnir sig Alþingi? Nei, það þótti sko í góðu lagi.

Hræsnarar og úrþvætti!

Lög á "Íslandi" eru í dag þýðingar á tilmælum frá Davos og reglugerðum í Brussel. Þýðingaralgrím Ríkisins hafa gert þingmenn "okkar" óþarfa, enda engin siðfræði lengur til í landinu.

Í glundroða rofinnar rjúkandi tungu, er engin merking lengur á neinu ...

Ó mig auman, þvílíkt hatur, eða var það fyrirlitning, eða kannski veikindi, ó mig auman!

... skrepp í bankann, til öryggis.


mbl.is Boð til nasista hið vandræðalegasta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingólfur Sigurðsson

Ég fékk covid-leiðinda-afbrigði í sumar, en skítt með það, maður tekur á sig slíkt glaður frekar en að sprautast og afmennskast, en ég taldi mig ræða við og skynja guð Biblíunnar, hef aðeins minnzt á það í einhverjum þræði eða pistli hjá mér. Hann sýndi mér mörg lönd og hvað hann gæti gert svipað og við Rússland, komið af stað einhverjum breytingum. Ég skynjaði eitthvað svipað og þú og fylltist af lotningu. Þetta var magnað.

Ég get ekki útskýrt þessa vitrun rökrænt, nema þannig að óvæntir atburðir geta orðið - tap eða sigur í Úkraínustríðinu er ekki eina leiðin fyrir regluvaldinn mikla sem við verðum að virða og taka með í reikninginn til að koma hér hlutum í rétt eða skárra horf.

Já við erum klikkuð sem aðhyllumst ekki hina nýju trú sem Geir Ágústsson fjallar um í nýjum pistli og leitar eftir nafni. Katrín fékk drottningarviðtal í gær í Silfrinu. Er við öðru að búast?

Beztu kveðjur. 

Ingólfur Sigurðsson, 26.9.2023 kl. 12:19

2 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

Takk fyrir þetta, Ingólfur, ég tek undir að vitrunarsýnir er því sem nær ómögulegt að lýsa eða útskýra. Ein, sem þráast við, því tengd sem þú nefnir, er að við verðum hrifnari af því sem verður, en því sem við viljum áorka í stöðunni.

Ég held þó að slíkt rætist ekki fyrr en vitnisburðurinn er fullnaður; að mannfólk (og líklega einnig mannkyn) fái ekki lausnung nema fólk almennt sé í eigin kyrrð búið að átta sig á siðrofinu. Því annars myndi enginn læra af þrengingunni.

Bestu kveðjur.

Guðjón E. Hreinberg, 26.9.2023 kl. 13:16

3 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

sú var snÖGG AP slÖkkva bledduð tÖlvan en les meira í kvÖld!

Helga Kristjánsdóttir, 26.9.2023 kl. 17:45

4 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

ErÖanú skrift hjá mér en er alveg að verða búin að læra á þá nýju,sem snýkti eftir að hella vatni yfir þá gÖmlu. Er óðum að finna Þ,ð,Ö,á þessari. Gott að lesa hér,en missti af silfrinu "sÖkum anna" góða nótt.

Helga Kristjánsdóttir, 27.9.2023 kl. 01:20

5 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

Takk fyrir innlitið, Helga, og Guðsblessun.

Guðjón E. Hreinberg, 27.9.2023 kl. 10:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband