Allir borða genabreyttan og verksmiðjuframleiddan Lax (og silung)

Kommúnista elítan - eða vitsmunafólk stofnana og óstjórnvaldsstofnana (NGO) - sem hvað ákafast berst gegn Laxi sem sloppið hefur úr sjókvíum, er sama elítan og minnir þig á að þessi lax sé erfðabreyttur. Sama elítan vinnur beinlínis að því að þú borðir genabreyttan mat og sama elítan vinnur beinlínis að því að þú borðir rannsóknarstofu framleiddan (Lab grown) mat og þá helst framleiddan úr pöddum. Enginn þessara kommúnista berst fyrir því að þú borðir heilaga íslenska norður-atlantshafs laxinn. Enginn þessara kommúnista berst fyrir hönd kjúklinga og svína í verksmiðju búskap, sem meðhöndluð eru stríðalin af vélum og sjá aldrei sólarljós og sjálf nærast á genabreyttu verksmiðjuframleiddu (Factory manufactured) fóðri. Ekkert þessara vitsmenna mun minna þig á að karlkyns hænuungar fara beint í verksmiðju sem framleiðir úr þeim mjölið sem systur þeirra nærast á, svo þú fáir kjúlla og bringur. Allir þessir kommúnistar vilja færa erfðabreytta laxinn í verksmiðjukvíjar í landi (í stíl svína og kjúllabúa), þar sem fleiri reglugerðir ná utan um þau og fleiri bjúrókratar og vitsmunatrúðar intelligentsiunnar geta plokkað og skattað og dæmt fyrir hönd sjálfstæðu stjórnvaldsstofnana sinna.

Var þetta erfiður texti?

Þú ert í augum þessa fólks tölfræðistak.

Þú getur ennþá flúið. Hvers vegna hafa hliðin ekki lokast enn?

Eitt að lokum. Frá 1929 til 1940 var að meðaltali 20 til 25 prósent atvinnuleysi í iðnvæddu vesturlöndunum, ásamt óðaverðbólgu og rýrnun á borgararéttindum. Fólk var óðum að yfirgefa vestrænan marxisma fyrir miðevrópskan og austurasískan fasisma. Heimsstyrjöldin var bókstaflega fabrikkeruð til að breiða yfir þetta ástand. Óðaverðbólgan lagaðist og atvinnuleysið lagaðist, vegna öfgafullrar vígbúnaðar væðingar, fyrst í stríðinu og síðan í kalda stríðinu. Undanfarna tvo áratugi hefur iðnaður og verslun og framleiðsla og einkaframtak dregist svo saman að sama ástand er nú í heiminum og var árin 1929 til 1940. Því er gjöreyðingarstríð óumflýjanlegt - því Elítan þá og afkvæmi hennar nú, hafa enga greind, aðeins herðagrjót - enda hófst það fyrir átján mánuðum - stórfengleg sprautuhelför hófst átján mánuðum fyrr, ásamt stórfenglegasta miðstýrða heilaþvætti allra tíma.

Í færslunni á undan þessari, bentum við á hvernig öryggisskoðun bifreiða hefur verið breytt í vopn gegn borgurum. Margir vita að síðan 2020, og raunar síðan 2009, er venjulegu fólki nánast ókleyft að eignast sitt eigið þak yfir höfuðið. Nú vikunni kom frétt á vb.is af enn einu leigufélaginu sem enginn veit hver á, að það eyddi milljörðum í að kaupa tugi íbúða til útleigu, og lofaði kaupum á tugum íbúða til viðbótar.

Hver er mælirinn á menningardauðanum?

Glæpir Elítunnar fyrir átta áratugum, eru allir óuppgerðir, og afhjúpun þeirra afgreidd sem samsæriskenning. Menning okkar er því hrokafull og iðrunarlaus. Við spáðum fyrir mörgum árum, að það ástand myndi verða þúfan sem veltir hlassinu fram af bjargbrúninni.

Spádómur þessi var borinn fram í þeirri von að hann myndi þá ekki rætast.

Enginn fjallar um að veturinn 2019/2020, hófu Blackrock og sérstaklega Vanguard að sópa til sín íbúðum í einkaeigu, í Evrópu og Ameríku, í gríð og erg og vilja meira. Öflugir fjárfestar á borð við Buffet, Soros og Gates sópa til sín á sama tíma öllu því landi sem þeir geta. Hér á landi eru KKF og Breska hermaskínan í keppni hver við annan að sópa til sín öllu því landi sem þeir geta nærri auðæfum í jörðu á norð-austur landi. Aðeins er upplýst um hluta þessarar ryksugu.

Einföldun; á sama tíma og þér er bókstaflega breytt í leirmenni og bergmálsfugl, eru þeir sem nenna að rýna skóginn, að sópa til sín afsölum fyrir alvöru fasteignum, og þá annarskonar þeim sem fólk vill binda þrælakeðjuna sína í eftir kvöldverð, og hins vegar eignum sem sprengjur fá ekki eytt.

Spennulosun lokið.

 

Smávegis viskukorn frá Greg Hunter og Catherine Austin Fitts. Þau eru iðin við að taka púlsinn á vestræna hræinu (Western carcass).

 

 

Það er hvergi neitt raunsæi lengur; nema hjá þeim sem flýja. Því raunsæi er háð náð Skaparans, og allar helgar ritningar hans ráðleggja flótta þegar siðmenning breytist í viðurstyggð.

 

 

 

* Marxismi og Fasismi eru hvoru tveggja þráttunarröskun (Dialectic) og hvorutveggja yfirtekur félagshyggju og útheimtir ritskoðun, þjóðamorð, og algjöra hlýðni við miðstýrða verðleikalausa áróðursmafíu. Hvoru tveggja er menningarmorð. Því miður er spádómur ellefta kaflans hálfnaður.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband