Ranghugmyndir dagsins - 20230921

Síðustu tímar eru ekki núna; þeim lauk 1975. Núna er upphafið á nýjum tímum, en þú veist ekki hvaða sýn mun leiða okkur þangað, og á meðan erum við stödd í fúafeni djöfulmennskunnar.

 

 

Taktu eftir hversu æðisgengin (Frantic) öll heimselítan hefur verið undanfarin fimm til átta ár; föllnu englarnir sem veita þeim innblástur, föttuðu þegar spámaður var sendur og hvað var þá í vændum.

Taktu einnig eftir að Antivisminn hefur verið skilgreindur, útskýrður og afmarkaður, og það hefur enginn í heiminum þorað eða haft vitsmuni til að skilja það. Ef Antivistar væru Activistar, myndu þeir ekki nota snjallsíma, né heldur Telegram.

--

Spurningin er ekki hvort föllnu ljósenglarnir sjö séu að meitla Samael, meistara sinn, lausan úr klettum Úranusar; heldur hitt. Hvers vegna telja þeir sig geta það, og hversu stuttan tíma ætla þeir í verkið. Skiljir þú spurninguna, þá veistu að sköpunarmáttur sálar þinnar er vélaður í verkið, getir þú viðgengist þeirri staðreynd, þá yfirgefur þú Píramídakerfið og kemur þér á grúfu.

--

Fyrstu merkin komu í vikunni, um að Píramídunum, eða Babýlonsturnunum 79 verði útrýmt, kom nú í vikunni, að rangsnúið og ólögmætt sameinuðu þjóða báknið verði tekið til rækilegrar endurskoðunar. Enginn efast um nytsemi þess að hafa vettvang til mótunar ríkjasáttmála og jafnvel í víðværu umfangi (global scope); en fyrr má nú rota en dauðrota.

Rofin er rjúkandi tunga; ekki ljúga táknin.

Sjáðu til; það eru milljónir manns í þögla meirihlutanum, sem liggur á grúfu, og þetta fólk bæði veit og skilur, og það er vegna þeirra sem enn er vottur af siðmenningu á stöku stað, ennþá.

Að lokum: Það skiptir engu máli hverju skólinn lýgur í börn eða hvernig þau eru heilaþvegin; ef foreldrar vinna heimavinnuna með þeim. Ef þú gast keypt vörur til heimilisins, geturðu farið sjálfur með ruslið á gámastöð.

Og loks, rúsínan; hafa Antivistar sagt þér frá "Project Syndicate" sem hefur samhæft alla þjóðfélagsverkfræði Vesturlanda síðustu fimmtán árin?

 

 

Viðbót 17:56 - á grúfu í mölinni - í boði Llowell J. Gallin og Roseanne Barr. Mæli með!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

Eru Antivistar að "kenna" þér að yfirgefa skólakerfið, eða eyða púðrinu í að rökræða við Elítuna um hvernig eigi að fínstilla félagslega skólakerfið sem fangelsar börn þín? Varist smalahunda antivismans. --Úlfur í sauðargæru (Fabian society)

Guðjón E. Hreinberg, 21.9.2023 kl. 12:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband