Miðvikudagur, 20. september 2023
Þú lemur þræl, til gamans, en ekki af nauðsyn
Engin þjóð í heiminum er eins heilaþvegin og hlýðin og flatneskjuleg, eins og Sprautlendingar (áður Íslendingar). Engin önnur þjóð borgar eins mikið fyrir "afsalið að íbúðum sínum" og engin önnur þjóð borgar eins mikið í skatta, og engin önnur þjóð lætur brjóta eins mikið á stjórnarskrá sinni. Hvergi í heiminum ríkir eins mikil skammsýni, þröngsýni, eða almenn rörsýn.
Engin stjórnarandstaða er á sprautulandi og engar umræður um eitt eða neitt. Þess vegna er ritskoðun nauðsynleg á Sprautulandi, vegna þess að það er hægt að koma henni á, ekki vegna þess að þörf sé á.
Allt framangreint er mælanlegt.
Þú flýrð það sem Jesú nefndi viðurstyggð á helgum reit, þ.e. innfallna (maðkétna) siðmenningu.
Ef þú skilur þetta ekki, þá ert þú leirmenni eða bergmálsdúfa eða hvorutveggja; þ.e. fullkomlega vitundarskrúbbaður. Hugtakið heilaþveginn, á ekki við neinn Sprautlending, ekki lengur.
Flýðu. Lifðu.
Það verður fljótlega of seint.
Aðvörun; Framangreint gæti brotið hatursegðalögin, og mundu að ég er andlega veikur maður og hef ekki fulla stjórn á hvenær ég rita löglegan eða ólöglegan texta. Bannað er að taka mark á slíkum textum. Þú átt að elska Elítuna, því hún elskar þig og hefur vit fyrir þér; ef þér finnst hún ranglát, þá er það þín sök að skilja hana ekki betur, nema þú h afir veikindagreiningu.
Þú manst að Góði dátinn Svejk hafði slíkan pappír.
E.S. Tókstu eftir að Ógnarstjórnin er núna að sameina alla háskólana og koma þeim undir öflugri miðstjórn í anda Norður-Kóreu? Snilld! Til hvers að kæfa stjarfa huga? Það er eins og að herða forskrúfaða ró.
Athugasemdir
Bifvélavirkinn hann afi minn spurði stundum út af fasteignagjöldum og sköttum sem hann hafði hreina óbeit á:"Hvers konar tegund af ræningjum eru þetta?" (Ríkið). Hann hélt því fram að maður ætti ekki hús sín þótt fullgreidd ættu að teljast á meðan borga þyrfti fasteignagjöld og skatta.
Nú er verið að auglýsa ókeypis sprautur. Elítan hefur snúið öllu við. Eins og Páll ofurbloggari kom inná, það er hræðslan sem stjórnar mörlandanum. Æ, við erum ekkert skárri en fyrir 500 árum þegar þjóðin svalt í torfkofunum og lét Danina kúga sig.
Vesturlönd munu annaðhvort skána samtaka eða alveg þurrkast út og verða yfirtekin. Eins og ég kom inná í nýjum pistli, ef Pólverjar sem hafa verið hatrammir útí Rússa skipta um skoðun geta Íslendingar það.
Það er von í því fólgin að Rússar eru þrátt fyrir galla sína með óbrjálaðri menningu en við.
Margir sögðu um það að þeir sem voru stimplaðir geðveikir í Þýzkalandi nazismans eða Sovétríkjum Stalíns væru þeir einu sem mark væri takandi á. Það væri eina heilbrigðisvottorðið þegar þau ástönd voru breytt að hafa verið kallaður klikkaður þá.
Afi hafði rétt fyrir sér:"Hvers konar ræningjar eru þetta?" (Ríkið).
Ingólfur Sigurðsson, 21.9.2023 kl. 10:59
Já, hef engu við þetta að bæta, Ingólfur. Nema fleyg orð góða dátans, ég er snar og hef pappír uppá það.
Guðjón E. Hreinberg, 21.9.2023 kl. 11:57
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.