Á eyrunum þekkist don kíkóti

Loftslagslýgin og andrúmsloftskattarnir, kynþvottur barna og kynbrenglun og fréttaþöggun fjölmiðla, lygaraplágan og eitursprauturnar, eða ritskoðun vinstri-öfga, eru ekki stök atriði, heldur flögg: Menning okkar er dáin og eina úrræðið er flótti.

Listinn er nægur af vitleysunni sem nú eigrar um bergmálshuga og ómar milli leirmenna, dáinnar menningar; eða hvernig rangindi og rökréttuóreiða ratar inn í reglugerðir og ólög.

Ef þú reynir að stagla í götin eða "vekja steingerða huga" verðurðu undir þegar stíflan brestur; og hún getur brostið á tvenna vegu, algjört hrun á öllum þáttum (m.a. með kjarnorkustríði) eða þá að "þjóðfélögunum" verður breytt í allsherjar gúlag með 15 mínútna gettóum.

Ekki láta Antivistana breyta þér í asna (Donkey*) og teyma þig áfram á eyrunum.

 

 

 

* Mig vantar gott Íslenskt orð fyrir "Donkey." Asnar (Donkeys) eru frábærar skepnur og það er leitt að við höfum ekki tvenn heiti fyrir þá eins og Engilsaxar.

En nú veistu hvaðan Gervantes fékk heitið á riddaranum sem barðist við vindmyllur hruninnar menningar Íbera fyrir fimm öldum síðan. Ef þú lest góða lýsingu á innfalli Spánverska heimsveldisins undir Filippusi II, sérðu nákvæma lýsingu á núverandi víðværu (global) heimskerfi hrokans.

Gerði tvenn myndskeið í vikunni - á ensku:

 

 

Viðbót 12:42

53 prósent skrifstofuhúsnæðis í 10 stærstu borgum Bandaríkjanna; tómt og ónotað.
Bundesbank, aðalbanki Þýskalands: hagvöxtur Þýskalands í ár er 0 (núll).
Kínverskt efnahagslíf dregst saman þriðja ársfjórðung í röð.
Bandarískur Senator: "við veikjum Kína með því að senda vopn til Úkraínu sem síðan rífur niður Rússland.
 
Bráðum verður of seint að flýja.

 Viðbót 14:58:

Öfga vinstrið kallar það upplýsingaóreiðu og hatur, að fá ekki að stunda kynþvott á börnum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband