Föstudagur, 1. september 2023
Velkomin til kommaheljar
Maður nokkur skrapp bæjarleið að kaupa sér bíl, en þar sem hann fékk ekki pössun fyrir hundinn, fór hundurinn með. Á heimleiðinni sat hundurinn í farþegasæti nýja bílsins, því ekki var búið að setja hundabúrið í skottið.
Skyndilega stöðvar bíllinn, og neitar að fara í gang, maðurinn fletti upp í handbókinni: Viti menn, gervigreindin hafði drepið á bílnum og gert startarann óvirkan, því "farþeginn" var ekki í öryggisbelti.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.