Saul Alinski hvað?

Allir sósíalistar og allir í öfga-vinstri, vita hver Saul Alinski var, og öll hafa þau lesið bók hans Vinnureglur róttæklinga (Rules for radicals) og öll nota þau aðferðir hans eins og við hin notum bænakverið.

Fáðu fólk þjóðar til að jagast yfir fáránleika s.s. hvort kyn sé líffræði eða hugmyndafræði, á meðan þú yfirtekur. -- Marxismi 101

Allir hinir, sem þessum tólf aðferðum er beitt gegn, hafa aldrei heyrt neitt um Saul Alinski, og það af augljósri ástæðu. Fyrir vikið kunna fáir að bregðast við aðferðum hans. Tökum tvö dæmi.

Marxistar iðka þá verkfræði að staðhæfa hluti sem eru fáránlegir, vitandi að raunsætt fólk reynir þá að rökræða þessa hluti. Marxistar vita vel að þeir staðhæfa óraunsæja hluti, en þeir vita einnig að meðan þú rökræðir (Reason) fáránleikann, gerirðu ekkert annað á meðan.

Sumir hafa tekið eftir að við erum hætt slíku; Umskiptikyn er ómennska. Punktur. Kyn er líffræði, kynhneigð stafar af sömu hormónum, annað er geðveiki. Punktur. Rökræða (Logic) á aðra vegu er illur kommúnismi eða Marxismi. Punktur.

Yfirleitt dugar þetta sem haltukjafti við Marxista, en margir þeirra verða æstir og hávaðagjarnir þegar stungið er uppí þá; og viti menn, hjóla í manninn. Þá svarar maður; alltaf sama sagan með kommúnista, þeir hjóla í manninn þegar þeir ráða ekki við málefnið.

Þessi tvö verkfæri duga oftast nær, og þá má ræða eitthvað skemmtilegra í staðinn.

Eftirfarandi sniðmát virkar á allflest, t.d. jafnréttismál, darwinsima, loftslagslýgina, togstreitu varðandi kapítalisma og fleira og fleira ...

  • -Það er engin loftslagsbreyting af mannavöldum
  • -þú trúir ekki á vísindin!
  • -þú sjálfur lest ekki vísindin, sýndu mér mælingarnar
  • -Þú ert fíbbl og asni!
  • -Takk fyrir persónuárásina

Dæmi: hvaða fyrirtæki græddu á að ýta Samherja út úr Afríku - og komust síðan þangað inn með sínum eigin mútum - og hvað segir fólk í Norskum og Færeyskum byggðum um starfsemi Samherja þar? --mæling

Því má bæta við að Mark Windows - windowsotheworld.net - hefur oft gert þessu viðfangsefni skil, en hann notar aðrar aðferðir en við ræðum hér. Fyrir áhugasama er þó Arkív hans þess virði að kynna sér, enda er hann alvöru og ekki Antivisti.

Næsta viðfangsefni.

 

 

Alex Jones lýsti því í gær, að Covid heimsveldið hæfi nýja stórsókn í haust, á tímabilinu septemberlok til októberbyrjun. Alex, eins og allir vita, er álíka misskilinn og Jesús.

Eins og einhver benti á í síðustu viku; fólk hefur alltaf vitað að varhugavert er að treysta fólki sem ýmist hefur völd eða ásælist völd, hvort heldur ríkis eða trúfélaga, en fyrir þrem árum tókst valdsjúkum að fá fólk til að vantreysta þeim sem vantreysta vélabragða pakki.

... compute that!

... og meðan ég man; Ríkislögreglan aftekur að spilling þrífist þar á bæ. cool


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helgi Viðar Hilmarsson

Hvað kallast smjörklípur marxista?

Helgi Viðar Hilmarsson, 19.8.2023 kl. 16:37

2 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

Allt sem þú áður hélst að væri þitt.

Guðjón E. Hreinberg, 19.8.2023 kl. 16:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband