Nóa flóðið; fullkomlega jaðrað í Darwinískum rangvísindum

Hitahvolfið (Thermal Sphere, Thermosphere) er 513 kílómetra þykkt og hitinn þar frá 1200 til 2500 gráður á Celsíus, nægur til að geyma vatnsgufurnar sem þéttust og mynduðu Nóaflóðið þegar vatnsborð sjávar hækkaði á örfáum vikum, árið 1656 AM (2105 BC), um 90 metra og færði 80 prósent borga heimsins í kaf.

Einfalt.

 

 

Það er engin líffræðileg sönnun fyrir þróunartilgátu Darwins, og því rangheiti að nefna tilgátu hans Þróunarkenningu Darwins. Útskýri þetta betur með enskum orðum: hypothesis that cannot be disproven elevates to a theory. Eða: Tilgáta sem ekki er hægt að afsanna, stígur til þess að teljast kenning.

Er hægt að afsanna tilgátu Darwins? Já og það hefur verið gert af mörg hundruð vísindamönnum. Valdakerfi upplýsingarinnar, leyfir þér ekki að vinna með slíka þekkingu, enda gæti hugur þinn orðið frjáls og sál þín náttúruleg. {sjá Jeremías 31 og 32}

Hér mætti nefna að þeir sem trúa á tilgátu Darwins, hafa aldrei heyrt um Alfred Russel Wallace eða hvernig hann tengist málefninu - þeim til háðungar.

Þú býrð hins vegar í djöfullega rangsnúnum heimi sem falið hefur fyrir þér raunsæja heimspeki og ábyrg fræði (Philosophy and accountable discipline) og uppnefnir einhverju orði - Vísindi - sem notað er til að snara huga þinn og stjarfgera sál þína.

Nóa flóðið var gert til að afnema ákveðna tegund siðrofs*. Heims siðrofið sem við erum nú að upplifa, er annars eðlis; en því var þó fullkomlega spáð. Hafa ber í huga að tímalínan sem nú er að fullna sig hófst fyrir 5783 árum og að þær vitundir sem hér eru að glíma, spanna slíkt tímahaf, og fjölæringar geta rýnt slíkt.

Að þú látir snara huga þinn og steingera sál þína, er á þína. Þeir sem vitnað hafa, eru frjálsir.

Viltu lista yfir alla þá sem skrifað hafa bækur sem afsanna Darwin eða viltu finna það sjálfur, eða skiptir þetta minna máli en flatskjárinn þinn og sjálfsfróunarferð til heimsborgarinnar Tene?

Einföldun; sá sem stjórnar heimsmynd þinni, og hefur duld yfir heimssýninni sem hún er smíðuð úr, ræður yfir huga þínum og stjórni hann einnig lífsgildamengi þínu hefur hann aðgang að steindun (Meitlun, Chiseling) sálar þinnar (11. boðorðið), og þar með stýrir hann öllu þínu lífi, og fer með þig nákvæmlega eins og honum sýnist.

Geri hann það með samþykki þínu, upplýstu sem óupplýstu, telur hann sig firrtan ábyrgð á afleiðingunum, EN þú munt ekki losna við afleiðingarnar, frekar en mottuberandi sprautuþegar og fótgangandi kolefnisbjánar í fimmtán mínútna Davosvík við sund.

Flókið?

Fleygðu þér á grúfu, og ef þú kannt það ekki byrjarðu á hnjánum, og lærðu Bæn, Iðrun, Vitnisburð og Fyrirgefningu. Þá mun öll þekking og tilheyrandi raunsæi rata til þín (í réttu hlutfalli við getu þína til úrvinnslu).

Veistu hvaða orka er notuð til að staðfæra (Manifest) Alheiminn á tiftíðninni þreföld-nanósekúnda? (1e+9 = 1 sek; * 3)*. Óvitund þín (Unconscious) sem rís úr tóminu (Nothingness, Emptyness). Geti föllnu englarnir virkjað óvitund nógu margra, geta þeir mótað heiminn í hvað sem þeim sýnist.

Minni þig á að allt sem þú veist um pláneturnar, kemur úr skáldsögum og ekki úr neinum mælingum, frekar en Sars-CoV-2 eða kolefnismettunin.

Þegar við bentum á fyrir rúmum tveim árum að Covid tilbeiðslan væri virkjun fallinna engla (nánar tiltekið ljósenglanna sjö) á óvitund fólks til að gera gríðarmikinn bor til að brjóta upp Úranus fangelsi Samaels (frá 2014), tefldum við djarft.

Fáeinum vikum síðar birti Nasa að á 17 tíma fresti gýs upp púls frá túrkis plánetunni, rétt eins og bor væri að vinna á henni. En Úranus er ekki úr gasi, heldur harðasta steinefni sólkerfisins; eina efninu sem er nógu hart til að fangelsa ljósengil.

Þú getur sniðgengið vitnisburð, en ekki afleiðingar sniðgöngunnar.

Komdu þér á hnén (á grúfu sem markmið): Bæn, Iðrun, Vitnisburður, Fyrirgefning. Þú bæði kemst að stöffi, og þú losnar úr álögum, og loks til Raunsæis, Réttlætis, og Mannvirðinga.

Vissir þú að ákvörðun, lög, loforð, og ætlan, eru allt saman frumspeki?

Vissir þú að allt heimskerfi föllnu ljósenglanna sjö - og leiðtoga þeirra Samaels - snýst um að þú skiljir ekki flóttann (Exodus) og finnir því hvorki dyrnar út um rauða sálarhafið, eða gönguna eftir eyðimörk hlutanna til fjalls helgaðra raunsærra hugmynda?

Það er útilokað, nú á öðrum erfiðustu tímum manna og manndýra að skilja a) flýðu og b) alþjóðlegar lagavarðar flóttaleiðir/búðir. Þegar þú ræður ekki við að skilja eitthvað og jafnvel tekur ekki eftir orðunum, eða dæmir þau ómerk þegar þú sérð/heyrir þau, er hugur þinn snaraður í rökrétta efnishyggju og fjarlægður raunsærri frumspeki.

 

* Siðrofið á tímum Nóa, var afar eitrað, því bæði leyfðu Kerúbar (Englar) sér þá að holdgast (Corporeal themselves) og geta afkvæmi (Nephilim) sem því voru skiptifólk/breytifólk, kynblendingar Kerúba og Manna. Því gátu þessi öflugu manngrey (Humanoids) gert hvað eina sem þeim sýndist og þeim var (og er) næstum ekkert heilagt. Í dag eru Nephilim þessir ennþá til, nema þeir geta aðeins birt sig gegnum þá sem leyfa þeim að ýmist setjast að (spirit possession) eða yfirtaka sig (Assimilate). Frá dögum Nóa hafa Nephilimarnir unnið að því af fullkominni einbeitingu að fá mann-fólk til að samþykkja að breyta sér öllum í mann-kyn og þar með leyfa þessum andaverum sem eru til hálfs mannsálir og englasálir (kerúba, ekki serafa og alls ekki lúsífera (ljósengla)) að afreiða mann-kynið (sem þeir hata en vilja þó vera) og genabreyta því svo þeir geti holdgerst. Þú getur rétt ímyndað þér hvernig fer fyrir okkur öllum ef þeim heppnast þessi áform, því slík ónáttúra verður ekki liðin í Alheiminum.

Flókið? Ekki ef þú kannt þriggja laga lestur ritninganna (Avestur, Tóra, Nýja Testamenti, Kóran), og ert læs á heimspeki og [verk]fræði (academic discipline).

Við ræddum nýlega tölurnar 11 og 19 - en höfum reglulega rætt tölurnar 7 sem þrefaldar gera 21 (en allar þessar tölur eru mikið notaðar í Eingyðistrúnni, en einnig misnotaðar af Frímúrum sem öðrum meitlunarklúbbum. Svo viðeigandi er í ljósi færslunnar að skeyta inn Esekíel 11:19-21.

"(19) I will give them one heart, and I will put a new spirit within them. I will take the stony heart out of their flesh, and will give them a heart of flesh, (20) that they may walk in my statutes, and keep my ordinances, and do them. They will be my people, and I will be their God. 21 But as for them whose heart walks after the heart of their detestable things and their abominations, I will bring their way on their own heads,’ says the Lord Yahweh."
{https://ebible.org/web/EZK11.htm}

Íslenska biblían orðar þetta svo:

"19Og ég mun gefa þeim nýtt hjarta og leggja þeim nýjan anda í brjóst. Ég mun taka steinhjartað úr líkama þeirra og gefa þeim hjarta af holdi, 20til þess að þeir hlýði boðorðum mínum og varðveiti setninga mína og breyti eftir þeim. Og þá skulu þeir vera mín þjóð og ég skal vera þeirra Guð. 21En þessir - hjarta þeirra eltir viðurstyggðir þeirra og andstyggðir. Ég skal láta athæfi þeirra koma þeim í koll, segir Drottinn Guð.""
{https://www.snerpa.is/net/biblia/esekiel.htm}

 

Þér hefur verið kennt að vísindin afsanni trúna, og þetta tvennt sé óbrúanlegt. Kannski er það rétt, enda eru vísindin rangsnúin og ekki raunsæ. Til að kanna þetta er auðvelt, og í rauninni einfalt, en það krefst trúar og hugrekkis og afmeitlunar*.

Loks mæli ég með grein á chabad.org - um ellefu atriði sem fólk veit ekki um Nóaflóðið árið 1656 AM*:

 

* Nanósekúnda er einn milljarðasti úr sekúndu. Skelli inn Wikipedia texta til nánari glöggvunar en hér fyrir ofan erum við því að ræða um einn þriggja milljarðasta úr sekúndu, en þá tiftíðni er útilokað að þróa tæki fyrir með núverandi eða upphugsanlegri tækni nútímafræða.

"A nanosecond is a unit of time in the International System of Units equal to one billionth of a second, that is, 1⁄1 000 000 000 of a second, or 10⁻⁹ seconds. The term combines the SI prefix nano- indicating a 1 billionth submultiple of an SI unit and second, the primary unit of time in the SI. A nanosecond is equal to 1000 picoseconds or 1⁄1000 microsecond."

* Aðeins máttur Skaparans getur gert hið meitlaða (steingerða) heilt á ný.

* 1+6=7 og 5+6=11. innocent

 

 

Viðbót 20230816-13:17.

Snillingurinn Mike Adams, sem þekktur er fyrir vandaða rannsóknavinnu og vel ígrundaða framsetningu, fer yfir landslagið (fyrir tveim dögum) hvernig Nephilim haldið og yfirtekið "fólk" reynir af alefli að gera Jörina og siðmenningu mannsins óhæfa til manneldis. Margir hafa tekið eftir, undanfarna tvo áratugi, hvernig þessi djöfulmennska eykst - eins og í veldisaukningu - ár frá ári og hversu ótrúlegur skepnuskapur er viðhafður síðustu þrjú árin og að því er virðist óstöðvandi. Nephilim útskýringar okkar, sem eru byggðar á hreinni ritningarýni, útskýrir fullkomlega þetta gerðarform (Agenda) og hvers vegna það er framið.

Þú kemst ekki lengur upp með dulspekilegt sinnuleysi með því að hrópa "samsæriskenning" fyrir óþægilegar staðreyndir. Nú er vitjunartími og þú getur ekki beitt 2019 eða 2007 aðferðum, ekki lengur.

Klippan með Mike Adams (47 mín):

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helgi Viðar Hilmarsson

Exodus, var að ekki þegar samansafn ættbálka sem hvorki hafði sameiginleg lög né trú flúði út í eyðimörkina undan kúgurum sínum, eignaðist þar sameiginleg lög og trú og varð þar með að þjóð.

Helgi Viðar Hilmarsson, 15.8.2023 kl. 13:28

2 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

... undir leiðsögn og vernd Skaparans, auk þess að mynda snjallasta lagasáttmála allra tíma. Stærsti hugar-atburður þekktrar sögu.

Guðjón E. Hreinberg, 15.8.2023 kl. 14:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband