Hvert á að flýja?

Hvert á að flýja? Hvers vegna þarf að útskýra það fyrir Antivistum sem hafa alla sannleikana? Sama hefur gerst margoft og verið leyst margoft með sama hætti.
 
Yfirgefa öll kerfi, fréttir, banka, stjórnmál, allt saman, og ræða um það. Taka út alla frídaga fyrstu fjóra daga hvers mánaðar. Þannig sveltirðu kerfið og hræðir Elítuna.
 
Varist Antivista, þeir eru stýrða andstaðan og sjá það ekki.
 
Varist baunirnar í grautnum, sem Elítan notar til að kvarna allar skoðanir og tefla fólki hverjum gegn öðrum, og smala síðan almenningi inní meira af réttindarýrnun (sjálfsvaldsrýrnun) og féflettingar.
 
Dæmi: bifreiðagjöld og hundagjöld eru sérskattar - seldir með orðhengilshætti - sem brjóta jafnræðisákvæði stjórnarskrár. Þú sérð þetta ef þú tekur þér smástund. Þannig ertu féfléttur í sneiðum, skref fyrir skref, geta þín til að ræða málin kvörnuð í mjöl, og á meðan eru þér gefnar þriggja mínútna fréttir með flóknum textum til að þeyta skoðunum þínum í allar áttir.
 
Niðurstaðan er að í dag greiðir fólk allt að þrem fimmtu allra tekna sinna í opinber gjöld; sexfalt meir en gert var í konungsríkjunum áður en Lýðveldin voru okkur gefin af Elítunni sem nú á 99 prósent alls.
 
Sleppið mótmælum, þau eru orkusóun; yfirgefið, yfirgefið, yfirgefið; ræðið um það.
 
Hættur að blogga - allt verið sagt sem segja þarf.
 
Vil þó bæta við einu:
 
Raunsæi er náð skaparans. Þetta er það sem Jósúa Maríuson átti við þegar hann sagði þeir segja aðeins lygar því faðir þeirra er faðir lyganna. Ef þú ert ættleiddur af djöflinum, missir þú raunsæi en færð í staðinn merkingarlaus rök. Leitir þú ættleiðingar eina Sannleikans - skapara Alheimsins - hlýtur þú náð raunsæis.
 
 
 
Viðbót 15:24:
Embættismenn Blackrock og Vanguard stjórna öllum heiminum - allar fréttir eru sviðsetningar, stríðið einnig. Það eru bara til fernir mannapar; Elítan, Almenningur, Antivistar, og Frelsingjar.
 
 
Það gefur auga leið að Ríki sem sprautar "þegna" sína með eitri, og skattar sexfalda tíund, er ekki ríki heldur fangelsi. Í slíku ríki hættir þú að greiða af skuldum þínum og telja sjálfum þér trú um að þú eigir það sem þú greiddir fyrir með lánum (og greiðir auk þess eignagjöld fyrir). Sem fyrr segir; þú flýrð öll kerfi, bókstaflega.
 
Eða tapar.
 
 
 
366070589_10227926620303971_6061050396439327623_n

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband