Hvers vegna sósíalistar allra flokka vilja útrýma siðfræði ritninganna

Bibban útskýrir það sjálf, svo við höfum engu við að bæta. Nema kannski að eftirfarandi texti lýsir rangsnúnum samtíma kommúnismans er tilviljun:

"32
1Þegar konungurinn ríkir með réttlæti og höfðingjarnir stjórna með réttvísi, 2þá verður hver þeirra sem hlé fyrir vindi og skjól fyrir skúrum, sem vatnslækir í öræfum, sem skuggi af stórum hamri í vatnslausu landi. 3Þá eru augu hinna sjáandi eigi afturlukt, og þá hlusta eyru þeirra, sem heyrandi eru. 4Hjörtu hinna gálausu munu læra hyggindi og tunga hinna mállausu tala liðugt og skýrt. 5Þá verður heimskinginn eigi framar kallaður göfugmenni og hinn undirföruli eigi sagður veglyndur.

6Heimskinginn talar heimsku og hjarta hans býr mönnum ógæfu, með því að hann breytir óguðlega og talar villu gegn Drottni, lætur hinn hungraða vera svangan og gefur eigi þyrstum manni vatnsdrykk.

7Vopn hins undirförula eru skaðvænleg. Hann hugsar upp pretti til þess að koma hinum umkomulausa á kné með lygaræðum, og það jafnvel þótt hinn fátæki sanni rétt sinn. 8En göfugmennið hefir göfugleg áform og stendur stöðugur í því, sem göfuglegt er.


Ógn og von hinstu daga

9Þér áhyggjulausu konur, standið upp og heyrið raust mína! Þér ugglausu dætur, gefið gaum að ræðu minni:

10Eftir ár og daga skulu þér hinar ugglausu skelfast, því að vínberjatekjan bregst og aldintekja verður engin.

11Hræðist, þér hinar áhyggjulausu! Skelfist, þér hinar ugglausu! Farið af klæðum og verið naktar, gyrðið hærusekk um lendar yðar, 12berið yður hörmulega vegna akranna, vegna hinna yndislegu akra, vegna hins frjósama vínviðar, 13vegna akurlendis þjóðar minnar þar sem vaxa munu þyrnar og þistlar, já vegna allra glaðværðarhúsanna í hinni glaummiklu borg! 14Því að hallirnar munu verða mannauðar og hávaði borgarinnar hverfa. Borgarhæðin og varðturninn verða hellar um aldur og ævi, skógarösnum til skemmtunar og hjörðum til hagbeitar - 15uns úthellt verður yfir oss anda af hæðum. Þá skal eyðimörkin verða að aldingarði og aldingarður talinn verða kjarrskógur, 16réttvísin festa byggð í eyðimörkinni og réttlætið taka sér bólfestu í aldingarðinum.

17Og ávöxtur réttlætisins skal vera friður, og árangur réttlætisins rósemi og öruggleiki að eilífu. 18Þá skal þjóð mín búa í heimkynni friðarins, í híbýlum öruggleikans og í rósömum bústöðum. 19En hegla mun þegar skógurinn hrynur og borgin steypist. 20Sælir eruð þér, sem alls staðar sáið við vötn og látið uxa og asna ganga sjálfala.


Harðstjórum steypt, ríki Guðs stofnað

33
1Vei þér, sem eyðir, og hefir þó sjálfur eigi fyrir eyðingu orðið, sem rænir, og hefir þó eigi rændur verið! Þegar þú hefir lokið eyðingunni, skalt þú fyrir eyðingu verða, þegar þú ert hættur að ræna, skalt þú rændur verða.

"

 

Á persónulegu nótunum:

Ef presturinn þinn, sheikinn eða rabbíninn hefur ekki sýnt þér fram á þetta, eða er ófær um að sýna þér hvernig vísindin eru vopnvædd gegn þér og rangsnúin; þá er söfnuður þinn hluti stýrðu andstöðunnar eða sósíalismans.

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband