Ranghugmynd dagsins; þú rökræðir ekki við jarðýtu - 20230701

ESB og Katrín eru nú að undirbúa rán á öllum eignum og innistæðum Rússa, hvar sem í þær næst. Davos mafían heldur áfram að loka bankareikningum - t.d. er verið að loka öllum bankareikningum þeirra sem stóðu að Brexit í Bretlandi.
 
Þú trúir því ekki enn að fjárfestar eru að flýja Ísland og vesturlönd, því covid-fjölmiðlar eru ekki að segja þér frá því. Enginn vill fjárfesta í kommúnistaríkjum þar sem reglugerðafrumskógurinn er ófær eða þar sem stjórnmálamenn ræna og stela hverju sem þeim sýnist.
 
Í vikunni sótti Eþíópía um aðgang að BRICS kerfinu, hátt í tuttugu lönd í heiminum eru komin í biðröðina. Öll BRICS löndin hafa hætt viðskiptum með Petró-Dollarann, og listinn lengist, nú síðast í þessari viku hætti Argentína að greiða IMF skuldir sínar með Dollurum.
 
FLÝÐU VESTURLÖND MEÐAN ÞAÐ ER ENNÞÁ HÆGT, SÝNDU AÐ ÞÚ SKILJIR BOÐSKAP BIBLÍUNNAR Í VERKI, og þú munt munt eiga smá séns í þeim hryllingi - þrengingu - sem er aðvífandi.
 
Allt sem gerst hefur frá 11. mars 2020 snýst um þetta og þetta eingöngu, hvort þú talar við Ofurvættinn eða hafnar honum - og það er óháð því hvaða trúarbrögð þú notar til að útskýra siðfræði þína.
 
Kommúnistinn Lúla, sem stal Brasilískum kosningum í vetur, hefur nú bannað keppinaut sínum Jair Bolsonaro - vinsælasta stjórnmálaleiðtoga Brasilíu frá upphafi - að gegna opinberum embættum þar til eftir 2030.
 
Velkomin í innfallna siðmenningu - myndi nottla aldrei gerast á Íslandi? Lastu færsluna í vikunni eða varstu að hneykslast á hvalveiðum og húsuppboðum? Ógnarstjórnin sem nú ætlar að banna þér allar hatursegðir, viðurkennir að lagaleg skilgreining þess sé ekki til - sjá nýlegar færslur.
 
Fyrir þá sem skilja alvöru samsæriskenningar. Það er búið að lofa Þórdísi að hún muni koma í staðinn fyrir Stoltenberg hjá Nató, og það er búið að lofa Stjórninni að aðal gagnaverin fyrir Evrópsku-Rafmyntina verði hýst á Íslandi (nýjar byggingar reistar fyrir haustið).
Rökstuðningur í boði .. ef ég nenni.
 
 
Smá um Breska bankareikninga, Nigel Farage - The Duran, svo og viturlegt og innihaldsríkt samtal Alex Jones við Aldingjann (Sage) Roseanne Barr í vikunni:

Ég er ekki mikill aðdáandi Duran-bræðra, en held þeim á radarnum öðru hvoru. Í gær gerðu þeir snilldarlega greiningu á hvernig stjórnmálafólk vesturlanda á engin samskipti við Alþýðuna/Skrílinn, og komast upp með að fá enga gagnrýni sem haldi þeim á mottunni. Greiningin er tær snilld:

 

"Mótmælin í borgum Frakklands, eru vegna ofnotkunar tölvuleikja og samfélagsmiðla."
--Emmanúel fyrsti {bein tilvitnun}

 

ÞÚ MANST: Það er bannað að taka spennulosunarblogg veikra einstaklinga alvarlega, svo þeir hafni ekki í gámagúlagi Ríkisins.

 

"Don-t be afraid to leave Babylon. Let it fall."
--Roseanne Barr

 

 

Viðbót 19:24

Ýmsir rýnendur hafa orðið varir við æfingar, undirbúning og útskýringar, í Úkraínu og á Vesturlöndum sem túlka má þannig að vesturlanda-mafían sé að undirbúa kjarnorkuatburð (Nuclear Event), í tengslum við Úkró ástandið.

Gerald Celente, sem síðustu 25 ár hefur verið færasti og óskeikulasti rýnir vesturlanda, fullyrti í vikunni að bandarískt fjármálakerfi verði hrunið í október næstkomandi.

Vonum að þetta séu rangar spár, en miðað við atburði síðustu 37 mánaða, og algjöra sturlun mann-kynsins, og ráðleysi mann-fólksins, - og sótsvarta illsku djöflanna sem yfirtekið hafa Elíturnar - býst maður í dag við hverju sem er.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helgi Viðar Hilmarsson

Hvað kallaði aldinginn Roseanna Barr fólkið sem átti að verða eftir í Egyptalandi en Móse ákvað að taka með í eyðimerkurgönguna. Þetta sama fólk smíðaði gullkálfinn. Arabra eða eitthvað svoleiðis. Hún sagði að Rothschild og Rockefeller tilheyrðu þessu fólki og væru ekki Gyðingar.

Helgi Viðar Hilmarsson, 1.7.2023 kl. 20:43

2 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

Erev Rav ...

Guðjón E. Hreinberg, 1.7.2023 kl. 20:52

3 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

... þeir sem þykjast vera það sem þeir eru ekki.

Guðjón E. Hreinberg, 1.7.2023 kl. 20:53

4 Smámynd: Helgi Viðar Hilmarsson

Sem sé alls konar lýður. Ex. 12:38

Helgi Viðar Hilmarsson, 1.7.2023 kl. 21:23

5 Smámynd: Helgi Viðar Hilmarsson

Þetta þýðir að ríka, freka og ósvífna fólkið er skríll.

Helgi Viðar Hilmarsson, 1.7.2023 kl. 21:24

6 Smámynd: Guðjón E. Hreinberg

mann-verur - þráttunarraskaðir ;)

Guðjón E. Hreinberg, 1.7.2023 kl. 22:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband