Ísland er ekki lengur til

Menning okkar er dáin, siðmenning okkar innfallin, Báknið (Establishment) er komið til jafns undir ESB og Sameinuðuþjóða-kerfið (The UN System), fólk er hætt að rækta málvitund eða merkingarfræði eigin tungu.

 

 

Elíta Fjölnismanna og ÍsQuislínga er nú þátttakandi í stærsta þjóðarmorði allra tíma, og viljandi að reyna ræsingu þriðju heimsstyrjaldar. Efnahagur landsins skiptist jafnt á milli Ríkisins og Lífeyrissjóðanna - m.ö.o. landið er í dag Marxískt Sovét Lýðveldi; og almenningur sem einungis horfir á rörSýn og skRúvu, heldur að framangreint sé samsæriskenning og að þetta reddist.

Margir hafa áhuga á heimsendaspám og heimsendafræðum (Eschatology), jafnvel guðlausir Marxistar hafa búið til fína útgáfu handa húmanistum, og eru þar farsóttir og loftslagshörmungar vinsælastar.

Flestir á vesturlöndum þekkja spádóma nýaldar spíritismans, sem er útþynnt samsuða úr Nirvanisma (Hindúismi og Búddismi) ásamt kryddi úr Júðskum og Kristnum hugmyndum. Loks eru kristnir sem hafa lesið Daníelsbók og Opinberun Jóhannesar spjaldanna á milli.

Íslendingar þekkja nottla vel til með Ragnarök Óðinismans (Wodanism), slag Týs og Loka við Miðgarðsorminn og það allt.

Fáir þekkja hins vegar eskatólógíu Múhameðs spámanns, en Sheikh Imran Hosein hefur gert þeim fræðum góð skil undanfarna tvo áratgugi. Af nógu er að taka í fræðum hans, en tvennt ber að nefna, hið fyrra er Eldurinn frá Yemen, sem óþarfi er að túlka, en ég tel að það tákn sé tvíþætt og hef útskýrt ítarlega í Arkívinu.

Hitt táknið er sú túlkun sjeiksins að Zíonistar (sem þykjast vera Júðar en eru það ekki) með stórar bankamafíur á borð við Rothschild ættina ætli sér að stroka út Petró Dollarann og koma á í hans stað sinni eigin heimsmynt. Telja má að sú stefna BIS, IMF og Davos að þvinga alla heimsbyggðina til notkunar á miðstýrðri rafmynnt sé ræting þessa tákns.

Þá hafa kristnir bent á að þessi stefna heimsbanka-mafíunnar, sem verður sífellt augljósari og er tekin í hænuskrefum (Baby steps) misstórum, sé hluti af táknum í Opinberun Jóhannesar s.s. að enginn geti átt nein viðskipti - eða keypt í matinn - nema hafandi merki dýrsins. Hér má nefna að Bill Gates og Davos eru langt komin með þróun örmerkis sem ætlast er til að fólk grafi í húð sína og er t.d. ESB langt komið í undirbúningi þess að skylda fólk til að verða þess konar húsdýr.

Antivistar og einnig ábyrgir rýnendur á borð við Catherine Austin Fitts hafa rakið þessa hluti vandlega undanfarna 36 mánuði. En eins og allir vita var Fitts um tíma undirráðherra í húsnæðismálaráðuneyti Bandaríkjanna, annað foreldri hennar starfaði fyrir Rothschild/Rockefeller báknið, og hún sjálf er glúrinn fjárfestir sem m.a. hefur starfrækt sína eigin hugveitu á fjármála sviði - solari.com - um árabil.

Hvað sem þú vilt vita, og hvaða skoðanir sem þú mótar þér í leyfisleysi eða eftir innprentun síðustu árin, þá lætur athugll engin viðtöl við Catherine frá sér fara.

Bíddu nú við: Íslandsbanki tilkynnti fyrir viku síðan, þann 22. júní,  að viðskiptum með áþreifanlegar skandinaviskar myntir hættir nú í sumar og með öllu eftir rúmt ár. Sumir hefðu búist við að slíkt væri stórfrétt.

Ég lýsti því fyrst yfir í Arkívínu, að mig minnir 2016, að Íslendingar væru ekki lengur til, og útfærði fullyrðinguna ítarlegum og sterkum rökum. Undanfarin sex ár, hefur mér þótt sorglegt að sjá þá útskýringu staðfesta í stórum stökkum.

Vinur er sá er til vamms segir.

 

 

Viðbót 20230701-00:23

Breska Konungsríkið lokar bankareikningum Nigel Farage, rétt eins og einstæðum mæðrum í Kanada. Þess vegna mun það ekki gerast hjá Lýgveldinu Íslandi ef þú passar að hafa réttar skoðanir og gleyma orðunum Flýðu, Lifðu.

mbl.is Íslenska hörfar sem móðurmál
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband