Mánudagur, 19. júní 2023
Svíþjóð er búið að vera, rétt eins og Finnland og restin af ESB mafíunni
Stór fullyrðing, en siðmenning vesturlanda er hrunin, eftir stendur eintómur rangsnúningur á stjórnmálum, lagasiðgæði, alþjóðlegum samskiptum, raunsæi, fræðimennsku og annarri ábyrgri menningarstarfsemi.
Ekki ber að skilja þessa yfirlýsingu sem ósk eða illkvittni (Cynicism), heldur sorg og eftirsjá. Húmanismi vesturlanda síðan 1551, íblandaður kristilegri, júðskri og íslamskri siðfræði, var bjartur ljósengill, en hann er nú fallinn í kulnun.
Tókstu eftir þegar sænskir bankar og sænskur gjaldmiðill féllu í vetur í kjölfar yfirtöku Davos kommúnismans á Svíþjóð og Finnlandi? Fjármálaspekíngar forðast í dag sænskt efnahagslíf eins og sjóðandi feiti. Var ekkert fjallað um þau mál, hvernig alþjóðasamskipti og ábyrgð þessara tveggja ríkja - eftir vandaða sögu í áratugi í öðru tilfellinu en meir en fjögurra alda í hinu - var strokuð út eins og eftir pöntun.
Heimurinn stendur í ljósum logum, og þú heldur áfram að fóðra bálið, eins og kona Lots. Hún vissi af siðrofinu, hún vissi hvað var í vændum. Þú veist hvernig það fór. Þú getur sniðgengið frumspeki og siðfræði ritninga, en sértu ábyrg mann-eskja flýrðu afleiðingarnar af því sniðgengi áður en það verður of seint.
Það sem fréttatengd skýrslan sagði er þetta; átök við eða árás frá Rússlandi er ekki hægt að útiloka. Eins og oft hefur komið fram um allan heim allar götur síðan 1848; kommúnistar ljúga og myrða og stela og afbaka og rangsnúna, eingöngu.
[Fréttin er notuð til að sýna fram á að raunsætt sé að Svíar gangi í Nató (sem á dögunum viðurkenndi að vera uppiskroppa með monninga og vopn). Hver sá sem eitthvað veit um alþjóðastjórnmál og hernaðarmálefni, veit að engin hætta er á innrás Rússa í Finnland eða Svíþjóð og verður aldrei. En um leið og þessi lönd ganga í Nató, gæti þeim orðið það nauðsynlegt, rétt eins og Nató hefur róið að því öllum árum síðan 2014 að búa til stríð í Úkraínu.]
Og í ljósi stórfrétta af hræðilegum og mjög sorglegan mannskaða við strendur Grikklands á dögunum, má geta þess að fleira er að frétta af þeim vettvangi.
Ekki hægt að útiloka árás Rússa á Svíþjóð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Já, siðmenning vesturlanda er hrunin. Svíþjóð hefur síðustu hálfa öldina verið étin innan frá. Borgarastríð geysar nú í því landi. Hvað tekur venjulega við þegar svo er komið? Innrás frá Rússlandi myndi sennlega bara gera því landi gott þegar upp verður staðið.
Helgi Viðar Hilmarsson, 20.6.2023 kl. 11:13
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.