Þjóðfélagsverkfræði Jakóbína hnattræns Marxisma

Allar fréttir varðandi skotvopn síðustu misserin, þar með talið hryllingsverkið á Blönduósi*, eru sviðsett af Elítunni. Það er stefna Davos verkfræðinnar að fjarlægja öll skotvopn, af einhverjum furðulegum ástæðum.

Það hafa aldrei verið vandamál með skotvopn á Íslandi, nema í höndum Elítunnar.

 

Þegar þú skilur öfga-vinstrið, sérðu hvers vegna þetta er. Því miður sjá Leirmenni og Bergmálsdúkkur ekki í gegnum meinfýsni (Wickedness) þess hyskis (Riffraff) sem hefur yfirtekið stjórnkerfi okkar og rangsnúið því.

Fólk sér ekki hvað verið er að gera því, og það mun uppskera afleiðingarnar af því. Ísland er að breytast í eftiröpun af Norður Kóreu og eina lausn þín er flótti.

80 prósent allra sem þú mætir á gangi, alls staðar í heiminum, eru vofur. Að mannkynið er geðbilað, er óhrekjandi staðeynd. Að stýrða andstaðan er verri; er óþægileg staðreynd.

Ólæknandi geðsjúkdómar, Ólæknandi krabbamein, Hvítblæðis og Sjálfs-ofnæmis sjúkdómar, Taugasjúkdómar, urðu til um leið og Bólusetningar eftir 1780. Svakaleg tilviljun.

Enginn vinnur neina heimavinnu.

Manstu þegar jaðarfréttir Antivismans voru fullar af fréttum, af bönkum í Ameríku og Kanada, þar sem innistæður fólks hurfu eða frusu og fólk fékk engin svör? Manstu þegar FTX rafmyntakerfi Bandaríska Alþýðuflokksins hrundi um svipað leyti? Tókstu eftir hruni eins stærsta banka Bandaríkjanna í síðustu viku? Einhver umfjöllun hérlendis? Nei, ekkert að gerast. En ég man haustið 2008 þegar kaupmáttúr rýrnaði um aðeins helming þess sem hann hefur rýrnað í vetur og smábanki í New York hrundi, og Miðbærinn fylltist af mótmælum öfga-vinstrisins sem hélt landinu síðan í herkví Stýrðu Andstöðunnar í heilan vetur; og ögavinstri fjölmiðlanna voru stútfullar af öfgafréttum af bankakerfinu, sem þeirra fólk yfirtók síðan í kjölfarið. Sama fólk og var að fremja stærsta þjóðarmorð í þekktri mannkynssögu.

Manstu í ársbyrjun 2019 þegar ég útskýrði að mannkynið yrði geðbilað það ár, að Guð myndi fjarlægja náð raunsæis? Manstu þegar upplýst vestrænt fólk setti upp vírusagrímur sem vísindin hættu að nota fyrir 400 árum, og hófu síðan stærstu genabreytinga tilraun allra tíma, með efnafræði sem er vitað að veldur blóðtöppum, hjartastoppi, greindarskerðingu og ófrjósemi?

Dáinn hugur; dáin menning. Rangsnúin lög og misbeitt dómsvald; innfallin siðmenning. Cerberus farinn á stjá, og Baphomet drukkið af blóðfórnum af öllu tagi.

Medúsu garðurinn afhjúpar sjálfan sig: Umskiptingar, Uppvakningar og Uppskafningar. Stjarfur hugur og steinrunnið (Petrified) hjarta.

Öfga-Vinstrið í Kaliforníu var að ræna 169 þúsund milljón (169 milljörðum) dollara, af reikningum Silicon Valley Bank. Einhver umfjöllun í Silfri "Egils Hliðvarðar?" Fattarðu hversu stórt þetta er?

Bankakerfið í Líbanon og í Nígeríu; hrunin.

Signature Bank (kryptó) lokað í morgun. Manstu þegar ég varaði þig við að banka innhlaup (Bank Bail in) væri á næsta leiti? Bankarnir sjálfir eru að ræða þetta. Innistæðurán. Áttarðu þig á hvað varð um 450 þúsund milljónir Bandaríkjadala sem rænt var af Rússum undanfarna 12 mánuði? Allt horfið og étið upp.

Var fjallað um í fréttum á Íslandi, þegar varnarmála ráðherra Bandaríkjanna fór til Ísraels að hitta Netanyahu, nú nýverið, og neyddist til að hitta hann í skemmu við hliðina á alþjóðaflugvellinum í Tel Aviv, því Ísrael logar í óeirðum eftir þjóðarmorðið þar, svo ekki var hægt að aka inn í borgina.

Ég sagði fyrir um árið 2015, í myndskeiðum, að Frímúrar myndu reyna enn eina ferðina að afmá Júðisma og þess vegna væru þeir að reyna smölun allra gyðinga til þjóðernis-sósíalista ríkis Zíonista í Palestínu. Þetta hefur ræst, nema ég hélt að þeir myndu nota kjarnorkusprengju en ekki nál. Þeir eru núna á sjöundu sprautu!

Tókstu eftir þegar Íran og Sádí opnuðu fyrir diplómatísk samskipti sín á milli fyrr í mánuðinum? Hefurðu fylgst með að Egyptar og allir hinir í Mið-Austurlöndum keppast núna við að heimsækja Assad í Sýrlandi, jafnvel meistari Erdógan er að hitta hann? Hefurðu fylgst með að stjórn Ísraels er að fríka út þessa dagana; því landfestar Nató fyrir botni Miðjarðarhafs eru rofnar.

Manstu þegar ég útskýrði í árslok 2021 að Nató er varnarlaust?

 

Mánuði eftir upptökur á God-s Will, kvittaði sólin fyrir.

Hefurðu fylgst með síðustu vikur; Bretar, Þjóðverjar og Frakkar geta að hámarki sent fram fimm herdeildir (Regiments) og eiga skotfærabyrgðir í að hámarki tvær vikur, og að ef t.d. Pólland með sinn 200 þúsund manna her myndi ráðast á Þýskaland í dag, myndu þeir keyra mótstöðulaust til Rínardals?  Talandi um her; veistu hvað Logistics er? Nató hefur ekkert logistics í dag, enga stálframleiðslu, enga viðgerðargetu, enga olíu á skriðdreka eða steinolíu á þotur, engar iðnstýringar, og hátækni draslið kemst varla dagleið frá viðgerðaverkstæðum sínum.

Á sama tíma er Elítan, með Tótu Metternich í broddi fylkingar, að lögfesta að Íslensk lög séu víkjandi fyrir reglugerðum frá Brussel! Íslenska lýðveldið sem hafði ógilda stjórnarskrá 2013-16, og lögfesti að fremja mætti þjóðarmorð í febrúar 2021, er ekki lengur til.

Innfallin siðmenning; sem ritningarnar nefna m.a. Viðurstyggð á helgum reit.

Hefurðu lesið öfgagreiningar mínar um landráð og siðrof á síðustu vikum? Þegar ég fyrst ritaði um mælanlegt siðrof, haustið 2019, hafði það aldrei verið gert á Íslandi né í hinum Vestræna heimi, og þetta síðasta fékk ég að vita frá þjálfuðum heimspekingi.

Her á Íslandi? Þú hefur ekki hæf[n]ilén raunsæis (faculty of reason)*. Þú ert ekki í lagi.

Nei það er bara sagt frá sumum áróðurs vísindum og sumum mómælum, ekki gegn þjóðarmorðingjum vesturlanda. Húmanísk félagshyggja hefur misst huliðshjálm sýndar-mennsku sinnar, ráns- og morðhyggju.

FLÝÐU - LIFÐU.

Það sem þú skilur ekki, sértu Almenningur, er að heimurinn sem ól þig upp er horfinn. Það er tilgangslaust að segja þér það sjáir þú það ekki. Sértu Antivisti, fæddistu sumarið 2020 og allur þinn Sannleikur miðast við það.

Fyrir Antivistanum eru það úreltar fréttir að 2009 samdi Pfizer um dómssátt - þ.e. var aldrei dæmt - og greiddi 2.300 milljón dollara, fyrir svik. Þeir hófu enn stórfelldari svik fyrir tveim árum.

Á jaðri Íslenskra umræðna er fólk sem er ekki Almenningur, eru ekki Antivistar, eru ekki Elíta, heldur menningarkverúlantar (Cultural Commentators). Þeir sjá að eitthvað stórt er að, en þeir trúa því að hægt sé með umræðum sínum að vekja áhrifahvata stjórnmála og menningar, til að skrúfa afturábak til 2017 og 2019.

Þeir vilja nýja samræðu, en þeir sjá ekki heldur að 11. mars 2020 dó 5782ja ára gömul Píramídamenning, samsett úr sjö heimssýnum, útfærðar í 21i heimsmynd. Fyrir þrem árum sléttum, var vitjunartími okkar allra. Þessir kverúlantar vilja bara samræður við þá sem eru IN. Rétt eins og Antivistar sjá ekki þegar þeir haga sér nákvæmlega eins og Almenningurinn sem þeir eru sífellt að reyna að vekja, þegar þeir eru gagnrýndir.

Í dag er Thesis og Antithesis allsráðandi, en báðir útiloka alla möguleika á Synthesis. Að allir eru sturlaðir og veruleikafirrtir, er ekki augljóst. Sértu veruleikafirrtur, trúirðu að óraunveruleg heimsmynd þín sé veruleiki: Að allir sem eru utan við þá mynd, séu sturlaðir. Þú sérð sturlunina, en ekki þína eigin.

Ég er á sama báti; ég veit að við erum öll sturluð en ég sé ekki mína eigin.

Nú ríkir Bæn, Iðrun, Vitnisburður og Fyrirgefning. Það er Veruleikinn. Þar er raunsæið.

Þú færð ekki réttlæti og þú sérð ekki flóttaleiðina, nema halda dauðahaldi í þessar höfuðlausnir fjórar.

Jeremía spámaður var sá sem vitnaði gegn fyrra musteri Frímúrans Salómons, og því var rústað. Jósúa vitnaði gegn hinu síðara. Nú eru heimsfrímúrar að undirbúa hið þriðja. Það mun fara fyrir þeirri menningarsind sem hinum. Og það mun kosta blóðfórnir milljóna.

Jósúa gaf mörg tákn til að vita þegar heimskerfi Píramídanna yrði vegið og dæmt. Mene Mene Tekel Upharshin. Öll hafa þau samtvinnast á síðustu fjórum árum. Þegar skilningur á opnun innsiglanna sjö var opnaður árin 2010 til 2014, var sýnt fram á að þau höfðu öll verið opnuð árin 1965 til 1975; síðan þá hefur mann-kynið ekki fundið neitt upp. Í fjóra áratugi, til 2015, unnu innsiglin vinnu sína á Medúsugarðinum.

Þessi niðurstaða er fullsönnuð. Veturinn 2015/16 voru fundir hjá englum; við fjölluðum um það á sínum tíma að spámanninum var sýnt í tvo þeirra. Við fjölluðum ekki um viðbrögð hans, né þeirra við því.

Menningarkverúlantar geta ekki beitt aðferðum sem virkuðu 2017; að bíða átekta, að smíða samræðu meðal sjálfra sín, og beita hefðbundnum aðferðum liðinna áratuga. Viljir þú samræðu, stendurðu við það og þú ekki bara hleypir öllum að samsræðusalnum, heldur ferð og býður þeim inn.

Þetta er útskýrt í ritningum Eingyðistrúarinnar, margsinnis.

Enginn þekkir vitjunartíma sinn.

Eins og spáð var.

Í maí 2018 rættist stærsti spádómur Jósúa Maríusonar; að Guðdómlegi sáttmálinn yrði útskýrður fyrir hvað hann væri, hvað hann væri ekki, hvað tilheyrði honum og hvað ekki, og hvernig hann væri virkjaður, og það yrði gert þannig að það yrði á svipstundu (Instantaneously) aðgengilegt öllu mann-fólki allsstaðar, með fullri merkingu og vægi. Þá hafði verið vitnað eftirfarandi í hálft ár; eyðið öllum Píramídum allsstaðar, eins og hverjum öðrum ómerkilegum steinahrúgum. Síðar var opinberað, að ellefta þrenging (Calamity) Egyptalands, var einmitt þegar Abu Rawash Píramídinn var sprengdur fyrir guðdómlegan mátt, beint í fésið á Faraó. Að það var ekki ritað í Ritningarnar, er augljóst, því þú kemur til Guðs fyrir trú en ekki óvefengjanlega sönnun.

Jeremías spáði eftirfarandi (kafli 31):

"

31Sjá, þeir dagar munu koma - segir Drottinn - að ég mun gjöra nýjan sáttmála við Ísraels hús og Júda hús, 32ekki eins og þann sáttmála, er ég gjörði við feður þeirra, þá er ég tók í hönd þeirra til þess að leiða þá út af Egyptalandi, sáttmálann sem þeir hafa rofið, þótt ég væri herra þeirra - segir Drottinn. 33En í þessu skal sáttmálinn fólginn vera, sá er ég gjöri við Ísraels hús eftir þetta - segir Drottinn: Ég legg lögmál mitt þeim í brjóst og rita það á hjörtu þeirra, og ég skal vera þeirra Guð og þeir skulu vera mín þjóð. 34Og þeir skulu ekki framar kenna hver öðrum, né einn bróðirinn öðrum, og segja: "Lærið að þekkja Drottin," því að þeir munu allir þekkja mig, bæði smáir og stórir - segir Drottinn. Því að ég mun fyrirgefa misgjörð þeirra og ekki framar minnast syndar þeirra.

"

 

Og úr kafla 29:

"

Þegar sjötíu ár eru umliðin fyrir Babýlon, mun ég vitja yðar og efna við yður fyrirheit mitt að flytja yður aftur á þennan stað. 11Því að ég þekki þær fyrirætlanir, sem ég hefi í hyggju með yður - segir Drottinn - fyrirætlanir til heilla, en ekki til óhamingju, að veita yður vonarríka framtíð. 12Þá munuð þér ákalla mig og fara og biðja til mín, og ég mun bænheyra yður. 13Og þér munuð leita mín og finna mig. Þegar þér leitið mín af öllu hjarta, 14vil ég láta yður finna mig - segir Drottinn - og snúa við högum yðar og safna yður saman frá öllum þjóðum og úr öllum þeim stöðum, þangað sem ég hefi rekið yður - segir Drottinn - og flytja yður aftur á þann stað, þaðan sem ég herleiddi yður.

15Þér segið: ,Drottinn hefir vakið oss upp spámenn í Babýlon.

16Svo segir Drottinn um konunginn, sem situr í hásæti Davíðs, og um allan lýðinn, sem býr í þessari borg, bræður yðar, sem ekki voru herleiddir með yður - 17svo segir Drottinn allsherjar: Sjá, ég sendi yfir þá sverð, hungur og drepsótt og gjöri þá eins og viðbjóðslegar fíkjur, sem eru svo vondar, að þær eru ekki ætar, 18og ég elti þá með sverði, hungri og drepsótt og gjöri þá að grýlu öllum konungsríkjum jarðar, að formæling, að skelfing, að spotti og háðung meðal allra þjóða, þangað sem ég rek þá, 19fyrir það að þeir hlýddu ekki orðum mínum - segir Drottinn - er ég hefi óaflátanlega sent þjóna mína, spámennina, með til þeirra, en þér heyrðuð ekki - segir Drottinn. 20En heyrið þér orð Drottins, allir þér hinir herleiddu, er ég hefi sent frá Jerúsalem til Babýlon.

"

Innihald þessara tilvitnana eru fjölæringum skýr, en öðrum leyndardómur, en reynum að negla þetta aðeins betur.

Esekíel 36:

25Ég mun stökkva hreinu vatni á yður, svo að þér verðið hreinir, ég mun hreinsa yður af öllum óhreinindum yðar og skurðgoðum. 26Og ég mun gefa yður nýtt hjarta og leggja yður nýjan anda í brjóst, og ég mun taka steinhjartað úr líkama yðar og gefa yður hjarta af holdi. 27Og ég mun leggja yður anda minn í brjóst og koma því til vegar, að þér hlýðið boðorðum mínum og varðveitið setninga mína og breytið eftir þeim. 28Og þér skuluð búa í landinu, sem ég gaf feðrum yðar, og þér skuluð vera mín þjóð og ég skal vera yðar Guð.

 

Hefurðu tekið eftir að við tökum ekki þátt hér í orðaálögum meitlara?

 

Smávegis á persónulegu nótunum. Í haust tókst mér að hætta myndskeiða predíkunum mínum á Íslensku, og nú eftir áramótin tókst mér að hætta því sama á ensku. Ég hélt í gær að ég væri líka hættur spennulosunarblogginu, en þeir sem lesa þessar spennulosanir mínar vita að ég er á handbremsunni.

Fjórir fimmtu hlutar mann-kyns eru í dag vofur; leirmenni og bergmálsdúkkur. Það er mælanleg staðreynd. Að eitt og eitt þeirra hefur aðgang að framangreindum loforðum Skaparans, að með iðkun Bænar, Iðrunar, Fyrirgefningar og Vitnisburðar, geta þau lífgast, ætti að vekja traust en ekki vonleysi.

Núna er einmitt sá tími: Engar predíkanir virka neins staðar. Einungis persónuleg samskipti við Skapara þinn. Allir aðrir sannleikar, eru gagnslausir Píramídar.

Þegar þú skilur, að í sköpuðum heimi er enginn sannleikur, því allt er skapað, og því mismunandi björt eða dimm staðfæring (Manifestation) skáldskapar - eða lýgi. Þá skilurðu að eini Sannleikurinn sem er í boði, hvar sem þú ert í Alheimi, er Skaparinn sjálfur. Þeir sem þá leið rata, rannsaka hvaðeina sem er, heimspeki, verkfræði, eða aðra þekkingu og skilning. Því að þekkja Sannleikann merkir ekki endilega að þú liggir á grúfu í helli til fjalla og umlir ó mig auman (þó það sé góð byrjun), heldur að þú getur mætt öllum alheiminum augliti til auglitis, því þú leitast við að gjörþekkja og þú ert gjörþekktur því þú hefur litið í eigin spegil án þess að líta undan né fegra. Þú skilur hvers vegna Eva er okkar fyrsti spámaður og Adam okkar fyrsti heimspekingur, og þú sérð bæði hvað þau áttu við með að hylja sind sína og einnig söguna sem þau gáfu okkur.

 

Myndirðu trúa því ef ég fyllyrti að allt að sjöhundruð börn, fimmtán ára og yngri, hafi dáið úr nálar-aðgerðinni á síðustu tveim árum?

 

* Atvikið á Blönduósi hef ég rætt og útskýrt í myndskeiði, ítrekun óþörf. Þú manst ekki storminn þegar ég greindi í myndskeiðum frímúra fórnina á Birnu frænku minni - eða allar skyrsletturnar og drullukökurnar sem ég fékk þá; en þegar dómsglöpin (Malfeasance) og þær launhelgar voru fullgerar, var ekkert sem þurfti að endurskoða í greiningunni.

* Varðandi orðið hæfilén eða hæfnilén, sem þýðingu á Faculty; hef glímt við í fáein ár hvernig best sé að snara því. Íslenskar orðabækur hafa fálmkenndar uppástungur.

 

 

Viðbót 14:07.

Þjóðfélagsverkfræðingar heimsmeitlara lesa bloggin mín, eins og margir hafa tekið eftir sem fylgst hafa með predíkunum mínum gegnum árin. Ísrael ákvað nú í ársbyrjun, að breyta sjálfu sér í Ísland og leggja af þrískiptingu ríkisvalds og afmá vestræna meðalhófsreglu.

Ríkisþingið í Nasistaríkinu Ísrael, Knesset, lögleiddi nú á þessu misseri; dauðarefsingar. Ríkisstjórnin þar í landi getur nú með sinni eigin Maríunefnd ákvarðað nánar hvaða "hryðjuverkatúlkun" eða "hatursegðatúlkun" falli undir þau lög. Á sama tíma var forsætisráðherranum afhent alræðisvald til að skipa dómara landsins, og þingið samþykkti síðan lög sem leyfa þinginu að hnekkja dómum dómstóla.

 

 

 

Viðbót 19:34

 

elitugull


mbl.is Erum að reyna að finna út hver þetta er
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband