Hvert eða hvort, á Hamlet að flýja, örvar ótrúlegra örlaga?

Það er freistandi að skrifa eða segja, að þetta sé ógeðslegt þjóðfélag. Það væri rangt. Að við erum í ógeðslegri menningu, væri líka rangt. Ríkið er þjóðfélag, stofnun háð almennum félagarétti. Samfélag er annað, og þau eru mörg, bundin af meðalhófi félagsrammans.

Menning okkar er dáin, hún er rotnandi hræ; það er ógeðslegt að búa í fnykinum af hræinu.

Að siðmenning okkar er orðin að "viðurstyggð eyðileggingar á helgum reit," það er staðreynd og það er einnig rotnunarfnykur af því hræi. Félagið hefur breyst í fangabúðir, öfgar og ranglæti.

Biblían ráðleggur, og Kóraninn einnig, að þegar "viðurstyggð eyðileggingar standi á helgum reit," þ.e. þegar ekkert er lengur að marka siðmenninguna og hún hefur innfallið, þá verður hún hættuleg og viðurstyggileg og þá er tilgangslaust að "ræða málin" eða "bíða eftir að þetta reddist," og að flótti sé eina leiðin út.

Bróðir Jesú minnti oft á þetta, og hann sérstaklega tiltók að á þeim degi varpar þú frá þér þeim eigum sem þú heldur að þú eigir, og flýrð.

Enginn kristinn maður er að ræða þetta. Aðeins einn Íslamskur meistari (Sheikh) er að ræða þetta. Einn gyðinga meistari reyndi að ræða þetta en var eiturdrepinn með "sjaldgæfu krabbameini."

Allur Antivisminn eins og hann leggur sig, er að fá þig til að gera þveröfugt við þessi heilræði. Öll trúarbrögðin eru að taka þátt í helförinni, öll tóku þau þátt frá upphafi. Öll eru þau fallin.

Þú sérð það kannski, eða kannski ekki; en öll menning heimsins er í dag rotnandi hræ. Öll siðmenning heimsins er innfallin. Það er rétt; það er enginn staður til að flýja til.

Þú verður að ræða það, ef ÞÚ vilt að Guð heyri til þín og opni leið út. Les enginn ritningarnar? Eru allir fastir í bókstafstrúar efnishyggju og yfirborðsmennsku Wikipedia eða Ríkisins og Antivismans?

Flestir Antivistaleiðtogar mun staðfesta hið augljósa; það er eitthvað andlegt og stórt í gangi.

Allir hafna þeir ritningabundnu innsæi, ekki endilega ritningunni sjálfri. Margir þeirra klárustu sjá, að sú geðbilun sem greip fólk í ársbyrjun 2020 getur ekki gerst í krafti samsæris eða heilaþvottar, að eitthvað dýpra gerðist og að það hefur frumspekilega náttúru.

Dr. Zelenko - blessuð minning - sá hvað það er. Við höfum margrætt það hér. Þetta er Guðdómlegur vitnisburður. Eina leiðin til að bregðast við slíku, er samræða við Skaparann sjálfan.

Antivisminn þarf ekki að vera stýrður af frímúrum eða kommúnistum, það er nóg að hann sé stýrður af þeim föllnu englum sem uppvakningar (Ghoul) hans hlusta á, sem síðan miðla vísindavídjóum sínum til uppskafninga (Gargoyle) sinna.

Prófaðu að segja Góðan dag, við Skaparann, daglega og áður en þú býður það öðrum. Bættu svo við; sýndu mér leiðina út.

Nú ríkir Bæn, Vitnisburður, Iðrun, og Fyrirgefning.

Ef þú biður um eitthvað, bættu þá við; verði vilji þinn að ósk sem flestra!

Þetta er því miður ekki flókið.

Allur heimurinn - almenningur og antivistar, og leiðtogar beggja - er nú á heljarslóðar braut, eins og einn samhæfður eitraður hugur, snarsturlaður; ófær að líta eigin afskræmdu spegilmynd. Enginn Antivismi getur lagað þetta ástand, þú getur aðeins flúið, en þú sérð ekki leiðina, hversu greið sem hún er, fyrr en þú ræðir þetta, við Guð fyrst og síðan vini þína.

Þannig virkar Guðdómlegur vitnisburður, þú sérð ekki neitt nema snúa þér til upprunans. Fyrst sýnir hann þér þinn eigin saur, sem þú situr í að eigin ósk. Já, þú óskar eftir eitraðri menningu, rangsnúinni siðmenningu, sem ælir út úr sér saurugum munnsöfnuði jafnt í vöku sem svefni. Nema þú sért flúinn viðurstyggðina; það gerist í huganum fyrst, síðan eftir leiðsögn hans sem tekur í útrétta hönd þína.

Það sem hófst 11. mars 2020; var nákvæmlega þetta, sönnun þess hver menning okkar og siðmenning, með öllum vísindum og stjórnvisku, raunverulega er. Og Spámaður hafði unnið þrotlausa vinnu, árin á undan, að rekja þræðina sem nú hafa verið staðfestir.

Þú mátt kommenta. Það breytir samt ekki framvindu þeirra engla sem nú eru að dæma viðbrögð hvers manns og hverrar konu um alla jörð, við þriðja mesta vitnisburði allra tíma.

Hverjir voru hinir tveir?

Já þú giskaðir rétt. Eva og Nói. Móse féll úr þriðja í fjórða, í fyrra.

Jesú, segir þú? Hann kvittar fyrir, gerði það alla tíð, að Móse væri sér fremri.

Les enginn ritningarnar (með þriðja auganu)?

Sá engin vídjóin um Pineal glandið? Já, smá háð: andlega fólkið sem tuðar um hluti, eru allt saman uppskafningar sem skilja ekki eigin vísindi. Þú lest andleg rit í þrem lögum. Þriðja lagið er með þriðja augs innsæi.

Er þetta aftur orðið flókið?

Já, vonandi, viska er best geymd kótuð.

Ég hef áður bent þér á, að meðan þú getur ekki fyrirgefið Satanistunum sem nú myrða fólk og réttæta sjálfa sig og rangsnúa öryggis- og vísindakerfum okkar, færðu ekkert réttlæti, því ekki verður opnað fyrir það. Þú veist hver öllu ræður.

... en þú þorir ekki að treysta á það, og þú þekkir ekki hrokafullar hugmyndir þínar gegn honum, veist ekki hvaðan þær koma, hvernig þú hleyptir föllnu englunum innfyrir girðingar huga þíns.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband