Föstudagur, 18. nóvember 2022
Reitingur
Aðal tónlistarkommúnisti landsins vill skyldusprauta þá sem ekki vilja vera þúsund þorskar á færibandinu að færast nær. Mótmæli gegn Davos kommúnistum fara fram núna í því nær öllum löndum Evrópu, en það kemur ekki í fréttum á Gíslíngalandi svo það er ekki að gerast.
Líklegra að einhver birti frétt frá paradísinni Tene.
Til að rafbílavæða Evrópu, þarf að sjöhundruðfalda raforkuframleiðslu álfunnar og aldrei eru birtar fréttir af hundruðum kemískra eldsvoða vegna rafvagna (bíla, trukka, strætóa) sem ekki er hægt að slökkva, eða tengdu tjóni á fólki og öðrum eignum.
Íslenska elítan hélt því fram fyrir tveim vikum að skammta þyrfti rafmagan á Íslandi og í vikunni að skammta þyrfti heitt vatn. Gleymdi þó að koma með trúverðuga ástæðu. Landið á heimsmet í umframdauðsföllum, Sóttvarnaskottulæknir heldur því fram að það sé vegna loftslagshlýnunar!
Svo kemur eitthvað Gáfnaljósið og kommentar, "ú, þetta var ekki uppbyggilegt."
Nei það er ekki uppbyggilegt þegar heil heimsmenning fuðrar upp og allir stinga hausnum í sandinn eins og tamdir strútar. Er eitthvað fjallað um FTX hneykslið hér á Leirmennalandi eða hvað það merkir?
Á landinu tekur nú sólarhring fyrir bankakerfið að stemma af færslurnar þínar. Í ljós kemur á morgun hvort kortið mitt hætti að virka, fyrir þessi orð. Eru einhverjir Íslenskir sjóðir sem hurfu í FTX hneykslinu? Þú manst þegar lífeyrissjóðirnir tæmdust 2009, og ég einn þorði að ræða það; síðan var tvöfaldað skylduframlag (rán) þitt í sjóðina og þeir endurbyggðir.
Sástu þegar gáfnaljósið Liz Truss ætlaði að endursmíða efnahag Breta og elítunni var hótað að breskir lífeyrissjóðir yrðu roktæmdir, hún fór frá og hótunin hvarf. Bandarískir lífeyrirssjóðir eru tómir. Heims efnahagurinn stendur í ljósum logum, okkar eigin elíta syngur undir kröfuna um kjarnorkustríð með Zlenský.
Ó, daginn eftir að hann krafðist kjarnorkustríðs (eina ferðina enn, nú í vikunni) lýsti hann því yfir að Úkraína væri nú laus við spillingu. Gott hjá honum. Sástu þegar systurflokkur Viðreisnar í Úkró kom hingað til lands í sumar, til að hjálpa sínu fólki að smalast inn í Brussel réttina? Kom það ekki fram?
Áttarðu þig á því hversu mikla penínga Woðatún og Brussel hafa gefið honum á átta mánuðum? Fattarðu að það er enginn peníngur eftir og að álfan er nú vopnlaus?
Þú veist að Úrsúla von der Leyen hefur núna vald til að skyldusprauta öll Evrópsk tilraunadýr, en hún gerir það ekki alveg strax því hún er upptekin við að rústa Evrópu með öðrum ráðum. En þar sem þú veist það ekki; allt sem er að gerast síðustu 32 mánuði, núllar framfarir síðustu 320 ára ef ekki meir.
Öll okkar siðmenning er hrunin og menning okkar dáin.
Allt sem við höfum verið alin upp við, um framfarir menningar og vísinda, hefur breyst í rauðglóandi heljarkol, eða lýgi og hræsni. Engin undantekning. Á meðan gólar andspyrnan eins og heilaþveginn Antivisti, allir í sama spangóli.
Afsakið ef orð mín eru ekki tékkuð af í málfarsráðuneytinu. Staðreyndir veruleikans hrópa framan í þig, og þú lætur eins og það sé 2019. Húmanisminn sem stýrt hefur heiminum síðan 1551, er dáinn.
Allt er í ljósum logum, það hættir ekki á morgun.
Þú ert ástæðan og það mun enginn leiðtogi eða draukenndur messías redda því fyrir þig.
Nær allir spádómar hafa ræst. Við höfum aðeins örfáa eftir.
Þér væri nær að kynna þér það, og hvað er ráðlagt þar.
Þú getur einnig kynnt þér hvernig vestrænn sósíalismi er byrjaður
að réttlæta og innleiða sína eigin útgáfu af Aktion T4.
Þú getur ekki komist hjá afleiðingum af sinnuleysi, né
heldur sniðgengið þvermenningarlegt siðrof.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.