Fimmtudagur, 17. nóvember 2022
Nánar um ÍsQuislínga
Vidkun Quisling var þjóðernissinnaður ættjarðarvinur í Noregi, sem tók að sér það fórnfúsa hlutverk að leiða ríkisstjórn Noregs á meðan landið var hernumið af Þjóðverjum. Bandamenn (Nató) uppnefna slíka menn Quislínga, og einnig leppstjóra.
Norskir kommúnistar drápu Vidkun Quislíng í stríðslok, með blessun Bandamanna Nató.
Enginn hefur nokkru sinni leyft sér að uppnefna leppstjórnir Bresk-Bandaríska heimsveldisins í Evrópu, Quislínga, þó þær séu það flestar. Nú í dag er vinsælt meðal Íslenskra leppa þessara sömu, að uppnefna héruð í Rússlandi, sem nýlega kusu sjálfviljug að yfirgefa Úkraínu, Leppríki Pútlers.
Ég hef áður bent á að allt sem gerst hefur í Úkró síðan 24. febrúar síðastliðinn hefur staðist rýni alþjóðalaga og bent á Kosovo fléttuna í því samhengi. Kosovo flétta Nató og árásir á Serbíu, fyrir tveim áratugum, var hreinræktaður stríðsglæpur. Ég hef einnig útskýrt þetta í myndskeiðum, en ekki farið of nákvæmlega í þetta, því bloggin mín eru spennulosun eingöngu.
Tekið hef ég eftir því að upplýst Leirmenni landsins hafa ekki minnsta grun um hvað um er rætt, en dugleg að ata auri hvern þann sem ekki syngur sömu bakraddir og DavosRÚV eða Lýgveldismafían.
Nýlega heyrði ég snillinginn Scott Ritter yfirfara fléttuna, skref fyrir skref, þ.e. hvernig Pútler vatt upp á hnykilinn. Það er sem ég sjái fyrir mér leirtröllinn fnæsa, að það sé ekkert að marka Ritter.
Minnir í þessum þætti hér:
Ef það er ekkert að marka þann gaur, þá er ekkert að marka neinar greiningar. Það er ekki hver sem er sem fyrst er sendur í eftirlitsferðir um Sovétríkin að rýna í að kjarnorkueldflaugar séu rétt teknar í sundur eða síðar að vera sendur um allt Írak (á tímum Saddams) að rýna í vopnabúr þar í landi.
Leirmenni eru lyddur og ragmenni sem ekkert skilja og ekkert vilja vita.
Sumarið 1940 vorum við ólöglega hernumin af Bretum og það réttlætt með tylliástæðu sem hvorki hélt vatni þá né síðar, ekki í heimsstjórnmála samhengi, stríðssamhengi né sögulegu. Frá því landið fékk fullt sjálfstæði veturinn 1918 / 1919, höfðu Íslensk stjórnmál verið sammála um (og svo til einróma) að Íslandi væri best borgið sem herlausu og hlutlausu í alþjóðamálum.
Sumarið 1940 breyttist sá söngur eins og kórstjórinn hefði skipt um sálmabók um nóttina, og enginn tók eftir því og enginn hefur þorað að ræða það nokkru sinni. Á næstu fimm árum hurfu þeir af vettvangi stjórnmála landsins sem viðhalda vildu reisn landsins og sjálfstæði.
Við gætum fléttað hér inn Stelpunum á kleppi, en ég gerði því góð skil fyrir fáeinum árum; engar stelpnanna voru klikk og allar voru þær fangaðar vegna njósna. En við ræðum það ekki frekar hér.
Athugasemdir
Góð grein Guðjón.
Birgir Loftsson, 18.11.2022 kl. 11:23
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.