Mánudagur, 24. október 2022
Fólk spyr gjarna "hvers vegna ættu þeir að ljúga" því fólk trúir á heiðarleika
Að trúa á heiðarleika fólks sem hefur smeygt sér inn í réttlætiskerfin okkar og rangsnúið þeim, er flónska; því mannkynsagan kennir okkur að lygarar, ræningjar, og manndráparar reyna ávallt að yfirtaka þessi kerfi.
Spurningin, hvers vegna morðingi drepur eða hvers vegna lygari lýgur eða hvers vegna þú kemur að þjófi í stofunni þinni; er röng. Það eina sem þú þarft að vita er hvort stolið sé af þér, logið sé að þér eða einhver drepinn, hvort lög séu brotin.
Vilji elíta stjórnmála og fjölmiðla ekki ræða þessa einföldu staðreynd, en fyllir allar umræðugáttir af allskyns froðu þess í stað, hefur þú enga siðmenningu og þú getur ekki brugðist við því með öðru en flótta.
Viljir þú ekki fræðast um glæpinn, hefur þú gerst sekur um hlutdeild í glæp sem heitir siðrof, og mannkynssagan mun ekki réttlæta þig né fegra, frekar en sagan um Nasista Hitlers eða Kommúnistana í Sovétríkjunum og Kína og þá sem tóku þátt í þeirra glæpum, og gera enn.
Ég hef tvisvar sett tengil í heimildamyndina um Dr. Fauci, í þessa færslu, og hún hverfur alltaf, því Miðaldir Húmanismans, eru jafn hræddar við Kólumbus og Galíleó í dag og Miðaldir Kristíanismans voru.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.