Sunnudagur, 23. október 2022
Smáglettni á fyrsta vetrardegi
Elítan var að finna upp orðið "pólerast" fyrir skautun. --Rokin túnga
Skjótum smámynd með, til að minna á Evrópska Sambandsríkið - sem enn kallar sig Evrópusambandið - sem enginn kaus en Ísland hlýðir betur og ítarlegar en nokkurt af fylkjum þess:
Sem minnir mig á Sjálfstæðisflokkinn sem gert hefur íhaldssemi og ábyrgð að "hægri öfgum," og þykist ennþá vera íhaldsflokkur en ekki harðsvíraður kommúnistaflokkur. Að ekki sé minnst á forneskju sem eitt sinn var til, einstaklingsfrelsi, athafnafrelsi, málfrelsi, og lagaleg ábyrgð.
Ég þorði ekki að draga fram önnur gildi sem vestræn kristin menning hefur stært sig af síðan 325 AD. Ekki tilbúinn í slag um þær nú úreltu öfgar.
Þú veist að Elítan er nú farin að bjóða uppá "antigen" hraðpróf til að láta þig vita - eða gera upp á milli - hvort þú sért með Kvef eða Flensu eða Covid. Samt hefur enginn einangrað neinn vírus þessu tengdu og því ekki hægt að aðgreina.
Segibarasona.
Nú eru síðustu forvöð að kaupa sér vasahníf, áður en lög um vasahnífaleyfi verða samin á Zelaklapparaþinginu. (Áður en þú kallar nafngiftina óvirðingu, minni ég þig á stjórnarskrána um hver má mæla á Alþingi og hver ekki og hvers vegna.)
Ríkið, er stjórnarskráin. Hafi fólkið sem valist hefur til ríkissmiðju, ríkisráðsmennsku og embætta, gert stjórnarskrána að ódýru djóki, býrð þú við rangríki og Lýðveldið hefur breyst í Lýgveldi.
Ræði þetta enginn, hvað þá ef aðeins útvaldir mega ræða, hefur þú enga menningu. Séu lögin orðin svívirðing við stjórnlög, hvað þá við frumspeki þeirra, hefur þú enga siðmenningu, og samfélög þín hafa breyst úr hópum viti borins fólks í [apa]hjörð sprautufíkla og grímudýra.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.