Þriðjudagur, 18. október 2022
Af lýðheilsuþingi elítunnar
Elítan hefur ekki vald yfir heilsuvitund okkar. Sósíalistar eru með Lýðheilsuþingi að ræna fólk. Þeir eru í raun að valdfesta ránið frá 2020. Ef þú samþykkir þetta rán verður fljótlega ólöglegt að rækta Aloe Vera stofuplöntur eins og sumar aðrar.
Hvað merkir yrðingin "landsmenn verði meðvitaðir um ábyrgð á eigin heilsu" eitthvað svipað og "speed of science?" Hvað merkir ábyrgð, þegar enginn ber ábyrgð á þjóðarmorði, eða afnámi siðmenningar?
Prófaðu að senda fyrirspurn til lyfjalygastofnunar og spyrja hvers vegna Salvía fæst ekki lengur á Íslandi, eða hvers vegna Colloidal Silver sé óþekkt hérlendis. Ég spurði röð lyfjafræðinga í apótekum héraðsins hvort það væri fáanlegt og enginn þeirra vissi hvað það er, né heldur hversu hollt það er fyrir lungun, ein þeirra öskraði á mig.
Að ekki sé talað um St. John-s Wurth eða B17.
Stórasta og hreinasta land í heimi; miðjan í storminum. Hér þurfti ekki að beita sama gerræði síðustu 32 mánuði og beitt var í Vestur Evrópu og Norður Ameríku, því við breyttumst í Norður-Kóreu með þegjandi samþykki allra, haustið 2017. Nær enginn sem ég ræði við meðal almenns fólks og jafnvel ekki meðal antivista veit muninn á hvað gerðist hér eða erlendis (eða er enn í gangi).
Mannkynið er algjörlega steinrunnið í Medúsugarðinum - Golems, Gargoyles, Ghouls. Að hafa verið opinberaður skilningur á þessari náttúru, er ein mesta blessun sem ég hef öðlast. Eingyðisheimspekin er eina heimspekin sem er þess verð að vera rannsökuð; og jafnvel föllnu englarnir eru að sanna það um þessar mundir. Þeir sem þráast við að sleppa martröð lýginnar, munu nærast á henni þar til lýðheilsa píramídanna drepur þá.
Tóku Rússar þátt í Hringborði norðurslóða á dögunum? Hefur einhver skoðað hnattlíkan nýlega eða landakort?
Sástu tilkynningu eins ráðherra í vikunni; Íslenska Lýgveldið ætlar að bjóða Kínverskum og Norður-Kóreskum "sérfræðingum" óheftan aðgang að þjóðinni og hag hennar. Það var orðað öðruvísi. Vissir þú að Austur Indíu flélög konungsríkjanna fimm eru enn starfandi og að danska útgáfa þess stundar mannsal af krafti? Kannaðu málið.
Hvaða fimm konungsríki hansa kaupmanna? Það útskýrðum vér ítarlega í myndskeiðum fyrir fimm eða sex árum.
Hvað hreyfir nálina?
Stundum þegar ég á samræður við almennt fólk hér í þorpinu, verð ég að líma á mig brosið og setja kínkakolli á sjálfvirkni svo ég missi ekki stjórn á mér yfir furðulegri heimsmynd fólks sem eingöngu horfir á heiminn í gegnum nálarauga og rangfærslublæti Elítunnar; ekki síst vegna einbeittrar blekkingarþrár sem þetta fólk (mann-verur) virðist þrífast í.
Ég hef ekki tölu á hversu oft almennt fólk sem trúði á Veiruna í blindni, vissi ekki um þáttöku Bill Gates í aðgerðinni og hafði aldrei heyrt minnst á Dr. Fauci eða á Tedros, hvað þá hver hefði fundið upp PCR skimunina. Þetta fólk hafði engan skilning á muninum á smitkví eða sóttkví og allt sem stangaðist á við trú þess var rangsnúningur, rangfrét eða verstu helgispjöll allra tíma; samsæris kenning.
Yfirleitt hugsa ég á bak við grímuna, á meðan samræðum stendur: FLÝIÐ ÞESSA HJÖRÐ OG LIFIÐ.
Stundum þegar ég sé sumar fréttir, t.d. frétt frá í gær hér á mbl af Kanye West, nú Ye West, taldi ég svo margar rangfærslur og áróðurslygar að ég starði og vissi ekki hvort ég ætti að rífa í hár mitt eða skegg, ekki vegna fréttarinnar sjálfrar (en ég hafði daginn áður kynnt mér ítarlega ádeilu Kommúnista gegn West), heldur vegna þess hversu áberandi lygar og rangfærslur eru orðnar og hversu auðvelt er að ganga úr skugga um þær.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.