Sönnun þess að þú sért ekki heilaþveginn

Hvernig þú veist að þú ert ekki heilaþveginn:

  • - Elítan kenndi þér að leika í leikskóla.
  • - Elítan kenndi þér lífsleikni og að hlusta, og lesa til hálfs, í grunnskóla
  • - Elítan kenndi þér að vinna og lesa smávegis meira, í framhaldsskóla.
  • - Elítan segir þér frá Veruleikanum með völdum fréttum; daglega.
  • - Elítan hefur skaffað þér popptónlist og sjónvarpssápur til að geyma þig þar, á meðan hún reddar öllum vandamálum.
  • - Elítan kenndi þér að sinnuleysi þitt og siðblinda, væru skemmdir vegna slæms uppeldis foreldra þinna, eða raskana á borð við ADHD; og þú værir því án ábyrgðar, bauð þér síðan úrræði og greiningar.
  • - Elítan ritskoðar fyrir þig hvað gerist á félagsmiðlum, til að forða þér frá falsfréttum og "upplýsingaóreiðu."
  • - Elítan sem tilbiður guðinn Hatur, hefur lögfest að rangt hatur sé hatursguðlast, og hún passar að þú hatir rétt.
  • - Þá hefur Elítan ákveðið hver séu löglega skráð trúfélög og gefið þér reglugerð sem leyfa þér að velja hvert sem er af þeim. Rétt eins og með allar kostningarnar, þar sem þú sást kjörseðilinn birtast með öllum málefnunum og flokkunum sem Elítan valdi fyrir þig.
  • - Ekki gleyma að Elítan lagði niður Aðalsættirnar sem hún spratt af, og gaf þér Vísindi og Lýðræði sem eru gegnsæ öryggis- og raunsæiskerfi; óumbeðin.

Þú þurftir ekkert að hafa fyrir neinu af þessu, enda er Elítan svo góð.

Þú ert gull og gersemi, með skattkort og atkvæði, og þú varar þig á "samsæriskenningum" djöfladýrkenda og norna sem tala um trúvillu á borð við Sannleika og Kærleika.

Þú ert afbragð og skiljir þú það ekki; ertu hægri-öfgari og ranghatari.

Passaðu svo að "læka" ekkert sem er óviðeigandi, því þú gætir misst vinnuna. Umfram allt, varastu rangar athugsemdir á félagsmiðlum, því þá koma net-tröllin á eftir þér; haltu þig inni í frelsisgirðingunni og passaðu að hata rétt.

Vertu í núinu sem er ekki til, og þetta reddast allt með næstu sprautu.

Já, efnishyggju og yfirborðsmennsku Marxisminn vill að þú tileinkir þér Núvitund, svo þú hafir enga tilfinningu fyrir hvaðan þú kemur eða hvert þú stefnir, heldur treystir okkar ástkæru leiðtogum fyrir allri þeirri visku sem þú þarft.

Við höfum áður rætt hvernig yfirborðs- og efnishyggjan er Núvitund, og að núið er ekki til. Fyrir sumum þarf að útskýra þetta, en það væri tímasóun hér. Hingað koma ekki þannig lesendur.

Hélstu að ritstíllinn væri tilviljun?

 

 

Úr einu í annað, á alvarlegu nótunum:

Kæri Sprautufíkill hins Opinbera
Þú hefur ekkert fengið að heyra af lögum* með Eric Clapton og Van Morrison, í næstum þrjátíu mánuði, því þeir sáu í gegnum Lygarapláguna og neituðu að þegja yfir því. En þú tókst ekki eftir að eitthvað vantaði á hlaðborðið; enda ertu góður sprautufíkill og þú færð fullt af bústum í næstu plágum.
 
*Lög í merkingunni tónlist en ekki ólög valdaþjófanna.
Þú getur flett upp orðinu Tónlist í næstu orðabók, í auglýsingahléi.
 
 
 

Bloggfærslur 6. janúar 2023

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband