Nýjasta tækni og vísindi; lygasaga allra tíma

Án alls gríns. Veðurfræðinga og fjölmiðla elíturnar fullyrtu síðustu tíu daga desember mánaðar að strax upp úr áramótum færi að rigna og að allan snjóinn myndi skola burt.
Þess í stað hélt brunagaddurinn áfram og snjóskaflarnir virðast ekki hafa lesið fréttirnar.

Þetta er allt sem þú þarft að vita um loftslagsbreytinga áróðurinn. En enginn mun hugsa út í það, því fólk trúir ennþá á Vírus sem enginn reyndi að sanna, lygaraplágu sem ekki var til, og Eitursprautu sem er ekki bóluefni.

Raunsæi gufaði upp 2019 og merking tungunnar hóf að rjúka eins og þoka fyrir vindsveip frá og með október 2021 þegar iðrunargáttinni (fyrir þjóðir og elítur) var lokað. Iðrunargátt einstaklinga eru helg vé sem enginn getur lokað.

Rétt eins og með Bæn, Fyrirgefningu og Vitnisburð.

Biblíuglöggir og söguvænir vita þó að Guð hefur oft dregið ský á milli fólks og sín varðandi bænir, en það hefur enginn getað útskýrt það eða tjáð um það nema Spámenn hans.

Það að fjórir fimmtu mann-kyns hafa kosið að taka þátt í stríði gegn Guði og þeim sem velja hann, er áhugavert í þessu ljósi, því lyklarnir fjórir - bæn, iðrun, vitnisburður, fyrirgefning - eru enn boðaðir.

En ef þú trúir ennþá á vísindi húmanismans, frekar en raunsæja heimspeki og göfuga verkfræði, þá ert þú í liði með lygurum og þjóða[r]morðingjum.

Aftur um loftslags prumpið.

Engar tölur sýna fram á súrnun sjávar. Lífríki og efnaríki hafsins sem um allar aldir hefur tekið við úrgangi frá landi og brotið hann niður, virkar þannig að útilokað er að láta hafið súrna.

Engar tölur eru birtar neinsstaðar - þ.e. mæligögn - sem þú getur sett upp í tölfræðilíkön. Einungis er birt áróðursúrvinnsla sérfræðinganna.

Hvirfilvindar og fellibyljir síðustu tvo áratugi eru minni og færri en öldina á undan.

Engar tölur sýna eða sanna teljandi minnkun jökla, og jafnvel þó þeir myndu allir bráðna, er ekki nægilega mikið vatn sem kæmi frá þeim til að hafa nein áhrif á sjávarborð. Hver sá sem lært hefur grunnskóla-stærðfræði getur reiknað út eftirfarandi jöfnu; flatarmál-sjávar alls heimsins sinnum tveir sentímetrar = rúmmálstala.

Hversu mikið vatn myndi fylla það rúmmál?

Engar tölur sýna neina breytingu á sjávarmáli síðustu þrjár aldir.

Síðan geturðu flett upp hversu mikið vatnsrúmmál er í öllum jöklum. Þú finnur ekki neitt um þessa verkfræði, sem öll skólabörn geta unnið úr með núverandi menntun en enginn á jörðinni reynir.

Bræddu ísmola í vatnsglasi; vatnsborðið breytist ekki.

Tölur frá t.d. gervihnöttum sýndu á síðustu tuttuguogfimm árum að engar meðaltals breytingar voru á hitastigi í heiminum, og það má ekki ræða það og fólk vill ekki heyra það.

Allt sem elítur stjórnmála og fjölmiðla segja þér um Koltvísýring er þvættingur, því það stenst enga eðlisfræði. Allt sem þau þar að auki segja þér um loftslagsmálefni heimsins, er byggt á tölvulíkönum og þessi tölvulíkön reikna út frá koltvísýrings lygunum.

Líkön þessi tilheyra einni af fjörutíuogsjö ólögmætum Alþjóðastofnunum, og heitir hún IPCC. Aldrei er rætt um IPCC í fjölmiðlum, því áróðursvísindi vilja ekki að þú lesir þér til.

Fóllk með greindarvísitölur skammast á félagsmiðlum - social media - og slummar á mann að maður trúi ekki á vísindin, vegna framangreinds. Sem eru nottla frábær rök, þú þarft ekki að trúa á veganlega verkfræði; þá er gott að spyrja þessa trúða, hvað heitir fyrirbærið hnattræn veðurfarsbreyting af mannavöldum á fræðimáli.

Fólkið sem trúir á vísindin getur ekki svarað þessu, því þau trúa áróðri og vinna enga heimavinnu. Almenna heitið er Anthropomorphic Climate Change en það er fyrir leikmenn sem vilja hljóma vísindalega. Mannfræði heitir Anthropology, til glöggvunar.

Fræðiheitið sjálft, er Coupled Non-linear Chaotic System og þegar ég fór fyrst inn í PDF skjöl IPCC að rýna hvort framangreint stæðist, viðurkenndu þeir að CNCS væri of flókið og viðamikið til að hægt væri að styðjast við mælingar eingöngu og því væru notuð [abstract] tölvulíkön í staðinn.

Ekkert tölvulíkan getur með áreiðanlegum hætti mælt fyrir um lífrænan veruleika [neins vistkerfis, frá Alheimi til Hnattar til Skrokks]. Rétt eins og þegar Elíta heimsins ákvað að trúa á fullyrðingar tölfræðingsins Neil Ferguson hjá Royal College, varðandi Lygarapláguna; öll tölfræði þessa náunga, frá upphafi, hefur reynst röng varðandi líffræðiknetti (biospheres).

Tölvunarfræðingar gerðu auk þess grín að C-kótanum sem hann gaf út, um hvernig plágulíkanið hans var reiknað.

Ég trúði elítunni varðandi vírusinn og pláguna, þar til ég hafði farið yfir vísindin og tölfræði eldri faraldra; þess vegna ritaði ég Húmanistadulspeki, því vísindi Elítunnar er spilaborg sem þolir enga rýni.

Þetta voru mér jafn mikil vonbrigði og öðrum sem farið hafa sama veg. Því öfugt við það sem Sósíalistar ala þig upp við að halda, þá elskar trúað fólk vísindi og raunsæi og verkfræði. Öll raunvísindi hafa verið fundin upp af trúuðu fólki.

Sósíalistabörn áróðurs og heilaþvottar, láta sér nægja að trúa á vísindin, og túlkun elítunnar á þeim. Því er nauðsynlegt að við yfirgefum borgir þessara manngreyja sem ekkert hugsa og vita það ekki.

Ef Elítan hefði ætlað sér að drepa helming mann-kyns á síðustu tveim árum, hefði henni tekist það og hún komist upp með það. Þetta er menningar- og tölfræðileg staðreynd.

Ég hef engan annan, síðustu 33 mánuði, bera saman tölfræði þekktra faraldra eftir 1950, utan mig sjálfan. Covid farsóttin var lýgi, ég get sannað það með tölfræði, ég margræddi það í myndskeiðum, ég fjallaði um það í Húmanistadulspeki; það hvarflar ekki að mér að birta gröf um það, því þú ættir að vera löngu búinn að vinna þessa heimavinnu sjálfur, þ.e. fyrir haustið 2020.

Þrír af hverjum átta sem fengu sprauturnar búa í dag við eftirköst og skaða af völdum þeirra. Þeim er öllum sagt, ýmist af læknum og hjúkrunarfólki, eða fjölmiðlum og stjórnmálum, að það sé ekki sprautan, og þau kyngja því.

Ég hef sjálfur verið vitni að því að fólk trúði því kjaftæði að hjartavöðvabólgur sem skyndilega birtust innan ættarinnar, væru vegna genagalla en ekki sprautunnar. Þau trúa ennþá að rýni í hvað gerðist, séu samsæriskenningar.

Ef Elítan segir þessum sprautuþegum sínum að myrða þig, muntu verða myrtur. Þau hótuðu, ekki bara hérlendis heldur í öllum vísinda- og lýðræðislöndum vesturlanda að setja sprautuhafnara í Gúlag og það var klappað fyrir því öllu.

Ég veit ekki hvað hægði á vörgum [elítunnar] og [almennum] föntum, því það er engin hindrun í vegi þeirra. Antivistar eru fíbbl sem bylur í eins og tómri tunnu, það tekur enginn mark á þeim. Það er ekkert sem komið hefur fram hjá Sannleiks-hreyfingunni sem gefur annað til kynna.

Menning er dáin. Siðmenning hrunin. Glundroði hafinn. Túngan rokin.

Raunsæir sjá þetta; hvers vegna fjarlægði Guð náð raunsæis árið 2019?

Ég hef áður bent á, heimssturlunin hættir ekki fyrr en fólk almennt kemst að einhverri niðurstöðu í huga sér, sem er ekki að gerast. Sturlunin verður með örum orðum í frosnu ástandi þar til þetta gerist.

Komumst við ekki að þeirri niðurstöðu sem beðið er eftir, verður fjórum fimmtu okkar eytt.

... og hvort Elítan fær öxina eða einhverjir aðrir kraftar? Veideggi, en hver veit.

Þú manst lyklana fjóra.

Notaðu þá.

Þú getur engu öðru treyst.

Ég minni þig á að Elítan er að blása til kjarnorkustríðs.

 


Bloggfærslur 5. janúar 2023

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband