Staða dáinnar menningar

Antivistar, boðberar "sannleikans," eru sömu gúngur og þeir sem trúðu á Lygarapláguna og Eitursprautuna. Þeir hafa enga sýn, engar lausnir, og eru jafn miklir fangar Apple & Google símanna og allir hinir.

Þeir vita vel að siðmenning okkar er hrunin og að eina lausnin er að ræða allsherjar flótta og að henda eignum sem þú greiðir fimmfalt verð fyrir. Þeir þora því ekki, þeir spyrja frekar hvert, en hvort.

Rétt eins og almenningur - sem veit þetta vel - eru þeir að fórna sem minnstu til að bjarga sem mestu en missa fyrir það aleigu, huga, frelsi og reisn.

Ritskoðunarkerfi samfélagsmiðla hafði eytt fjórum árum í að vinsa úr hverja ætti að ritskoða og láta þig vita hverjir væru ritskoðaðir, og markaðssetja þannig stýrðu andstöðuna sem villir þér sýn. Þegar allt var tilbúið, var Covid helförin ræst, vitandi að andspyrnan yrði stýrð.

Gandhi benti á lausnina; breyttu mótmælum í dag bæna og föstu. Móses, Jósúa Maríuson og Múhameð bentu á hið sama; þegar viðurstyggð hefur yfirtekið siðmenningu (stendur á helgum reit) yfirgefur þú borgina (Siðmenninguna)(The Civil-ization).

Þú yfirgefur, þú hættir átrúnaði, þú snýrð þér annað - og þú lætur það sjást - og sveltir valdið og frekar en að næra það. Því mótstaða við vald (og áróður) nærir það jafn mikið og hlýðni.

Þetta vissu Þjóðveldismenn í upphafi fjórtándu aldar, þegar þeir þvinguðu þjóðhöfðingja sinn til hlýðni við þing sitt; með þessari úreltu og afar flóknu aðferð.

Einföldum þetta: Þú sigrar ekki rányrkju, morðóða elítu eða heimsveldi með áhöldum sem þeir nota sjálfir, þú notar það sem þeir hafa engin svör við. Ef fylgjendur Antivistanna væru allir að ræða þennan einfaldleika, væri ennþá siðmenning og engin ritskoðuð (dauð) menning.

Þú bjargar engu núna, það er öllu þegar tapað. Eina leiðin er út [úr hugarlandinu].

Allt sem þú gerir í smartsíma er rýnt af prófílnum sem aktiverar þessa síma, hjartsláttur þinn þegar þú lest eitthvað ásamt skjámynd þess sem þú samtímis horfir á. Þó þú sért á dulkóðuðu svæði á borð við Telegram, er allt lesið. Þeir vilja að þú farir á jaðarsvæði, frekar en að gera grín að óraunsæinu án þess að reyna að þvinga einhvern til sannleiks-vöknunar.

Jaðarfólkið sem heldur að það hafi Sannleikann, sér ekki silfurfatið sem framreiddi hann eða sálfræðina sem girðir hann af.

Dáin menning. Hrunin siðmenning. Glundroði og rokin tunga.

Sjö dánar sýnir, tuttugugein rofin heimsmynd.


Myndu Ósjálfstæðismenn skilja nú að flokkurinn þeirra er Kommúnistaflokkur?

Þegar Elítunöðrur yfirtaka ríkið, breytist ríkissmiðjan úr meðalhófi öryggiskerfa er sem flestir gætu sætt sig við, í öfgafullan og pólitískan rangsnúning sem ekkert hefur að gera með veruleikann.

Fyrir utan að allt sem viðkemur áróðri loftslagsbreytinga kemur úr tölvulíkönum IPCC og er svo fullkomlega óraunsætt að jafnvel brjóstmylkingar geta séð það - kæri þeir sig um:

Þá er augljóst að þegar Elítan veitir einhverjum útvöldum afslátt af gjöldum, á meðan rányrkja reglugerða og gjalda tífaldast; Ríkið er í dag Marxískt alræðisríki og því verður ekki snúið aftur í vísinda og meðalhófs Lýðveldi.

Glöggir vita að rafbílur eru akandi sprengjur og oft sjálfkvikna þær. Þeir kemísku eldar sem koma þá upp eru óslökkvandi. Fréttir af þessu eru allar kæfðar, og það sannar að óraunsæir og útdregnir Marxistar sem nú ráða vesturlöndum, eru hættulegri en Stalín, Maó og Hitler til samans.

 


mbl.is „Á góðri leið með að úthýsa rafbílum“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 3. janúar 2023

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband