Færsluflokkur: Bloggar

Umræðan þessa dagana; getur Trömp komið á friði

Nei, Íslenska Lýðveldið og ESB eru ákveðin í að koma á allsherjar styrjöld og Pentagon Juntan* sem á Trömp og Musk og Thiel og hina í nýja valdagenginu, vill það einnig. Spurningin er ekki hvort verður stríð, heldur hver kyns átakatækni (Strategy) er í höfðum þeirra sem prjóna valsbrögðin (Tactics).

... og þetta stríð hófst þann 11. mars 2020, og siðmenning heimsins var aflögð eins og dómínó árið 2021.

Hið fyndna er, hversu fáum þetta er augljóst. Var eikkur að segja Leirmenni og Bergmálsfólk (myndstyttur Medúsu)? Er einhver staðar útskýrt hvernig það náttúrulögmál sem þekkt hefur verið í þúsundir ára, er virkjað, eða afnumið?

Minni á lyklana fjóra sem tóku við af Trú, Von og Kærleik; Bæn, Iðrun, Vitnisburður og Fyrirgefning. Og skiljist ekki lyklarnir, er menntun þín steinlím.

Varðandi allar umræðurnar undanfarna daga um Tariffs eða innflutningshöft, a) Heimsveldið hefur verið gjaldþrota síðan í ágúst 2019 og b) til að endursmíða hergagna iðnað Bandaríkjanna þarf að smala fyrirtækjunum heim, þessum sem GATT og WTO smalaði að heiman í kjölfar Clinton áranna.

Vantar þig sönnun?

USAID og opinbera kerfið er skorið niður vegna fjárskorts en ekki af einhverri Efficiency (skilvirknis) hugmyndafræði og Trump er að draga Heimsveldið út úr Úkraínu því þau fáu vopn sem enn eru til, eru á leiðinni til Palestínu og önnur til að styrkja heimavöllinn.

Heimsveldi bakka aldrei, nema þau séu tilneydd, og þau viðurkenna aldrei ástæðuna. Manstu eftir Írak? Hvernig stóð á því - í fyrsta sinn síðan á dögum Hittíta - að innrásarlið viðurkenndi mistök? Já, sprengjurnar voru til, en Saddam kom þeim undan, en hvert? Þegar þú þarft að viðurkenna stórelld sprautumorð, þá seturðu stimpil á þau, t.d. long-covid.

Hélt aðetta væri einnig augljóst, alltsaman.

FLÝÐU eða fáðu einhverja með þér í alþjóðlegar flóttamannabúðir (Öryggis Gettó), já, því alþjóðlegar flóttamannabúðir fría þig undan [ó]lögum elítunnar. En þetta var útskýrt til fulls fyrir fjórum árum, með lögfræði og alles.

Miðstýrða allsherjar ríkið hans Trömp, er jafn vont hjá honum eins og það var hjá Bæden og Óbama og Clinton og Nixon og Rúsevelt og öllum hinum. Þú getur látið glepja þig, en það breytir ekki hjólfari hugans og hlekkjum hjartans.

... en þú hélst að það væru bara samsæraöfgar, því þú ert myndastytta sem afhentir öðrum hugann.

 

 

(nyttland.is)

(divinestate.org)

Þú getur haft heilann bundinn við [heilaþvotta] trogið,
og hugann afhentan, en það er val og ekki lögmál.

 

* The Pentagon Junta er hugtak sem við höfum útskýrt vandlega í Arkívinu, en við erum ekki hér að ræða herráðið í stofnuninni og þá sem eru þar í forsvari fyrir kerfið. Mælum með eftirfarandi Præmer: "War is a racket" eftir Smedley Butler hershöfðingja.


Sprautuskaðaðir þurfa engin "réttindamál"

Eins og búast má við frá alræðis og áróðurs fjölmiðli, er ekkert minnst á hvort langtímaskaði af völdum sprautunnar sé uppnefnt lang-covid, og reyndar ekkert minnst á að neinn hafi dáið eða misst heilsuna af völdum sprautunnar.

Dáin menning, innfallin siðmenning.

Blind trú á Vísindin og Allsherjar traust á Ríkinu (Society, State), eru sko alls engar öfgar, og engum hættulegt, eða þannig.

Svo eru aðrir sem rýna vísindin, og minna ríkið á siðfræði ... og það eru öfgamenn!

{https://x.com/denisrancourt/status/1898207916055736644

 

Þegar "mann-kynið" missir raunsæi, en raunsæi (Reason) er náð (Grace), þá verður hið óraunsæja rökrétt og hið raunsæja órökrétt, og sturlun verður norm.


mbl.is Réttindamál covid-sjúklinga í lamasessi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

- eitt lígið gé -

Á góðri stund, úti í smók, fyrir nokkrum árum, leit ég á trén, stillti mig inn á skynástand (Meditative stance) og spurði stundarhátt - í hugans hljóði - þið eruð eldri en við, svo þið vitið margt sem við vitum ekki enn, svo hvort erum við sköpuð eða þróuð?

Hvorugt, svöruðu trén, við erum glædd (Inspired).

Hef leitað lengi í málvitundinni að réttu orði til að geta ritað þetta á Íslensku, en atvikið gerðist með enskum orðum. Eða mig minnir það.

Ef Alheimurinn - ef það fyrirbæri er yfirleitt til - þenst út á hraða ljóssins, sérðu ekkert, einni mínútu utanvið . Eða það hvað?

--Óreiðuskoðanaröskun

 

Eða:

Lýðsefari (Populist) er sá sem leiðir Lýðsæld (Populism) til farsældar (Prosperity).

 

 

Orðabókin:

  • Inspired    - Andagift, Andríki, Hughrif, Vekjandi
  • Inspired    - Hugljómun, ANDLJÓMUÐ, Innblástur, ...

Innlegg í fárið

Svo þér sé það ljóst, þó bergmálið í fyrirsagnavitund þinni sjái það ekki, en yfirlýsingar Trump varðandi Grænland, Gaza og Kanada, voru allt stríðsyfirlýsingar og framkoma forsetans við Úkraínu"stjórn" er framkoma keisara við leppstjórn, og sniðganga hans við ESB mafíuna jaðrar við það sama.

 

 

Þér getur mislíkað þetta persónulega og sagt Trumphitt og Trumpþetta, en staðreyndin er sú að allir Bandaríkjaforsetar frá tímum Polk (sem þú heyrir aldrei nefndan) hafa hagað sér eins.

Sem minnir á annað:

Ef elíta ríkisins vill meira stríð en almenningur vill hafna stríði, hver kaus þá hvern? Uppstillinganefndin? Ríkiseigendaklúbburinn? Hreppstjórafélagið frá 1121 þegar vistarbandinu var komið á til að drepa þorpsmyndun (og eignamyndun) við verin á vorin?

"Sturlun mun tvöfaldast ásfjórðungslega héðan í frá, því Samael hefur verið fangaður og borgarastríð föllnu englanna er hafið."
--Guy Ellis, apríl 2014

Svo við vitnum í aðra útgáfu af Spennulosun:

"Árið 2019 hverfur allt raunsæi á jörðinni."
--Guy Ellis, 2019.

Og:

"Ef þú ferð í börnin, vekurðu þér bölvætt sem ekki verður rökrætt við né kveðinn niður fyrr en allir hlutaðeigandi meðal elítu og almennings hafa annað hvort iðrast eða goldið fyrir."
--Guy Ellis, 2021.

"Raunsæi er náð, og þegar náðin hverfur, breytist hið óraunsæja í rökrétt."
--Guy Ellis, 2022.

Pútín sagði eitt sinn í sínu fræga viðtali við Oliver Stone, "það er ósiður að vitna í sjálfan sig eða segja Toldyouso". Svo við hættum þeim ósið, en minnum á Arkívið, þar sem allt er útskýrt.

En:

Nokkuð sem margir hafa rætt í jaðarheimum undanfarin misseri, varðandi Trúðinn Zelenský:
"Þó hættulegt sé að vera óvinur Bandaríkjanna, er lífshættulegt að vera vinur þeirra."
--Henry Kissinger.

Það breytir ekki því að framkoma þeirra þriggja nú á dögunum, Zelenský, Vance og Trump, í Hvíta húsinu, er ekki hegðun Ríkisráðsmanna, heldur trúða, og hegðun ESB mafíunnar t.d. á Parísarfundinum þar sem Mette Danaráðherra var fulltrúi "Lýgveldisins" og nú á dögunum í Kænugarði, er sami trúðasirkus.

Svo við segjum og ritum:

"Stundum er ég ekki viss hvor er forsetinn, Musk eða Vance, en þykir augljóst að Trump er fjölmiðlafulltrúi þeirra."
--Guy Ellis, í gær.

Hey, tókstu eftir hversu mörg elítufélög sem nefna sig stéttarfélög fóru í fýlu þegar samið var við kennara? Manstu, þegar fyrst var sóað í stríðsrekstur og daginn eftir var samið?

Bíddu:

Stéttarfélög snúast um að taka af þér réttindi en ekki að verja þau. Þetta höfum við rökstutt ítarlega í Arkívinu, og það er augljóst þegar Bergmálstjaldið rofnar í vitundinni, en hitt er annað: það veit enginn almúgajón og engin almúgagunna um hvað var samið við kennara!

Fyrir þá sem ekki lesa Ritningar og Sögu. Föllnu englarnir elska að staðfesta spámannlega vitnisburði. Þeim finnst það fyndið.

Þannig gera þeir grín að þeim sem efla hagsmuni þeirra (óvita sem tilbiðja ímyndir (illusions) þeirra).

Eins og Jesú og lærisveinarnir minntu svo rækilega á, eins og var á dögum Nóa, mun fólk djamma og djúsa í sjálfumgleði og sinnuleysi þar til dyrum arkarinnar verður lokað, og þeir munu gera gys að þeim sem flýja ó-gleðina, þar til rigningarnar hefjast. Lauslega umorðað.

 

 

Spennnulosun lokið.

--Arkívið!

 

e.s. 14:18.

Á nítjándu öldinni var tímalína vestrænnar sagnfræði einfölduð og samræmd. Notað var allskyns samkrull úr alls kyns viðmiðunum til að tjasla henni saman. Margt er á huldu um hvað var rétt eða hvað var skírskotun eða hvað var skáldskapur þegar kemur að þeim Wikipedia fræðum.

Minni hér á að Benedíktínar héldu utan um Sagnfræði frá 325 AD til 1551 AD og London og Vín eftir það til 1918 og eftir það ... tja ... "Bandamenn." Allt sem við vitum í almennri og akademískri Sagnfræði, er frásaga og ekkert annað en frásaga, vandlega ritskoðuð.

Í minni orðræðu - þegar kemur að sumum hlutum - leyfi ég mér að fara út fyrir línuna en það krefst oft dýpri heimavinnu. Til að mynda miða ég við 423 BC (3338 AM) varðandi hvenær fyrra musteri Salómons var rifið, en þá nota ég útreikninga Chabad Rabbína, og áður en ég tók þá ákvörðun skrifaðist ég á við þá til að veiða rökstuðning þeirra.

Wikipedia fræðin hins vegar miða við 586/7 BC, eða hálfri annarri öld fyrr. Hér er mikilvægt að átta sig á að Tími Óumskorinna, (eða Tími Heiðingjanna - eða Tími Þjóðanna, eða Tími Goyjanna (Time of The Goymin)) hefst við rif musterisins, tími sem spanna mun 2500 ár!

Margir kristnir "dispensationalistar" (sem er afmynduð kristinfræði búin til af anglíkönskum vitundarvélráðum á nítjándu öld) hafa lagt mikið upp úr þessu tímabili, eða hvenær því lýkur, og valdamesti karlaklúbbur allra tíma - Meitlararnir - nota þessi viðmið. Svo þó þetta sé óþekkt í heimi Bergmálsfólks og Leirmenna, þá er þetta ekki ekkert.

Þetta er sumsé, eitthvað, og ef - samkvæmt okkar viðmiðun - tími óumskorinna (Goyim) lýkur 2097 AD, þá er áhugavert að Pfizer ætlaði að halda upplýsingum varðandi stærstu blóðfórn allra tíma lokuðum, til þessa árs, já þú ert sprautudúkka soldið stórra launhelga.

Áhugavert er í þessu að Chabad Rabbínar eru flestir Zionistar, og allir vita að ég er sjálfur mjög gagnrýninn á Zionismann. Þetta drögum við fram til að minna á að veröldin er ekki svarthvít. Reyndar eru sumir þeirra svo djarfir að bæta við, að þeir séu það af praktískum ástæðum vegna aðstæðna. Það er þeirra.

Chabad vitringar eru öflugir í sumum rannsóknum, en Ultra Orþódoxarnir eru betri þegar kemur að siðfræðinni sjálfri ... allavega. Gaumgæfni, eða þannig.

Það sem við vildum draga fram, til áminningar, eru lýsingar í Jeremía spámanni, þegar hann vitnaði gegn Musterinu og þeim kabal (mafíu) sem gert hafði musterið að fyrstu stórustu penínga og svindl maskínu allra tíma, með tilheyrandi skurðgoðadýrkun. Atriði sem Elía spámaður hafði fáeinum öldum fyrr sannað svo stórkostlega og eftirminnilega, en Hebrear höfðu ekki skeytt um vitnisburðinn nema í fáeinum atriðum og þeir héldu áfram að rækta Siðrof.

Þegar vitnisburður Jeremíasar hafði náð hámarki, birtist einmitt kýrskýrt fyrirbæri sem á tímum Móse var uppnefnt Amalek, en hefur alla tíð síðan verið uppnefnt eitthvað annað eða yfirfært á annað, en það er synagóga þeirra sem þykjast vera það sem þeir eru ekki. Amalek voru síðar uppnefndir Makkabear, í dag eru þeir nefndir Zionistar, en sálfræði þeirra og hegðun er best útskýrð í Jeremíasi eftir að borgarmúrar höfðu verið rofnir og héraðið hernumið af Þjóðunum (Goyim).

Það er hollt að hugleiða innihaldið, með gaumgæfni (Discernment) en óhollt að binda sig við áróðursfræði og heilaþvott.


Fyrst stríðið og síðan börnin

Margir tóku vafalaust eftir flóði athugasemda á Vefnum í gær, nóg til að monningum í stríðið, engir handa kennurum, og veskú, í dag er samið.

... ég iðrast nú andstöðu minnar gegn Katrínu ...

... Katrín, ég sakna þín ...

 


mbl.is Samið í kjaradeilu kennara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki mínir leiðtogar

Sósíalískur stjórnvaldsherra Norður Kóreu, sem trúir sömu marxísku hugmyndafræðinni og stjórnvaldsherrar og kerfisráðherrar vesturlanda, uppnefnir sjálfan sig hinn ástkæra leiðtoga.

Þetta eru fangaverðir, ránsherrar, raungusnúningsfólk og fjöldamorðingjar, sem kunnu að spila á hið svonefnda Kerfi til að klífa tröppurnar í einum allsherjar sósíalískum samhljóm (Consensus) þar sem enginn hugur er og sálin er myndastytta, sem nú eru í orða- og vopnaskaki við vætti Lögmætis og Forsjónar, og Alföður sjálfan, af fullkomnu horti (Hubris).

Nú ætti að vera öllum ljóst, eða fullsannað, að Úkraínustríðið, er algjörlega á reikning ESB/Nató mafíunnar. Hver einasti maður, karl eða kona, sem drepinn er í þessu gjöreyðingarstríði, er á þeirra registör. Lýðveldið, er Lygaraveldi.

En veistu hvað hort merkir?

Já, það er sjálfumglatt (Complacent) gort í fésið á vættum - eða storkar þeim upp í opið geðið. Manngrey (Humanoids) sem útdeilt hafa sjálfum sér afl og vit goða og vætta.

Fylgdu slíkum, í sjálfumgleði, og sinnuleysi (Apathy) og þú endar þar sem þau enda.

Eða yfirgefðu (Exodus).

Slíkt gerist reglulega í [heims]menningu, að raunsæi hennar deyr*, sem síðan eitrar eða inntærir* (Implodes) siðmenningu, þegar SIÐrof (Anomie) breytir hugum fólks og vitund í saltstólpa, en nú, rétt eins og spáð var, hefur þetta "fólk" sem samlagað (Assimilated) hefur sig illum vættum Nephilim ættar, þá verkfræði eða tækni á valdi sínu að geta umbreytt heimsbyggðinni, eða hnattrænu mannlífi, í eyðimörk og það á marga vegu frá bíólógískum eiturhernaði, til eldsprengna, og allt þar á milli.

Snjallsíminn og QR kótinn er tákn þessa.

Hvar er Luddítaklúbburinn sem einn reyndi að hamla þessu ógeði?

USAID lagðann niður.

 

 

* Þegar raunsæi (Reason) deyr, breytist hið óraunsæa í rökrétt (Logical) og enginn gerir greinarmun á siðferði (Morality) og siðfræði (Ethics) eða veit hvað menning* er eða munurinn á menningu og siðmenningu. Reyni eikkur að útskýra, er það eitthvað djúpt og flókið og ekki skemmtileg afþreying.

* Við höfum ekki fundið gott Íslenskt hugtak fyrir enska hugtakið "Implosion" en þegar siðmenning innfellur eða inntærist, standa kerfin sálarlaus eftir, stofnanir þess standa enn, og þær tútna út og yfirtaka allt sem á vegi þeirra verður, þar til puntstráin sem þau nærast á, kikna undan þeim. Ævinlega er varað við þessu í tíma og jafnoft góð ráð sniðgengin.

Stofnanir og reglur, eru jú byggð á frumspekilegum hugtökum, en ekki alvöru efnisgerð fyrirbæri, þó þau líti þannig út og stærð þeirra og vald er í hlutfalli við Ástand (State) þeirra huga sem á trúa. Þegar efnishyggjan, félagshyggjan og valdhyggjan yfirtaka kerfin og trúa á þau í blindni og af hortugheitum, deyr allt sem þau snerta. Sjálfumglaðir "leiðtogar" Vesturlanda, halda að vesturblokkin "sé eitthvað" og því blindir á hugmyndina sem staðfærir hana (Manifests it).

* Menning er öll útskýrð hugsun mannfólks. Siðmenning er sá hluti menningar sem nýtist til SIÐar þ.e. þær reglur sem hópur mannfólks getur sætt sig við að séu eins mörgum til velsæmis* og geranlegt sé, með blessun vætta[r], en velsæmi þrífst í hófsemi og virðingu en deyr við frekju og yfirgang.

 

 

Howard Zinn - 3 mín 30 sek.
"You can-t be neutral on a moving train."


mbl.is Beint: Leiðtogar mættir til Úkraínu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jei, meira stríð í boði "Lýgveldisins"

Við ræddum á sínum tíma, dálítið undarlega kosningu innan "Lýgveldisins" í nóvemberlok síðastliðin, og hvernig þeir fáu sem voguðu sér að benda opinberlega á hið sama voru slaufaðir til jafns af elítu og almenningi.

Síðan þetta var höfum við haft ánægju af þegar fólk hér og þar á förnum vegi, ræðir af bjartsýni og ljúfþeli um hina nýju stjórn. Yfirleitt svörum við þá glottandi, hvaða stjórn, er ríkissmiðjan að breytast, en góðborgarar snúa þá talinu upp í nýjustu fótboltafréttir, eða æsifréttir af Trump.

Einnig greindum við dulfræðilega* sum forn - og eitruð - tákn sem límd voru á nýju stjórnina, sem annaðhvort eru notuð af algjörri fákunnáttu, eða beittri. Hugtak sem við tökum okkur ekki í munn hér, né niðurritum.

Eins og Bernie Mack einn hafði vald á; nuff said. Leirmenni og Bergmálsfólk hafa ekki lengur næmi á vægi orða og merkinga, og eru stífð* sjálfsvirðingar af verkfræði sem gerir þau ófær um að sýna nokkra.

 

* Dulspeki er "Mysticism" og Dulfræði er "Mysticalism" - hið síðara var hliðarsett í heimsmenningu aldirnar 400 AD til 1500 AD og hvarf alveg eftir það. Fræði sem voru ríkjandi þegar fallni ljósengill Dulhyggjunnar var með heimsvöld nær allrar vitundar og heimspeki. Þetta höfum við greint ítarlegar í Arkívinu. Þetta er verulega djúpt stöff en óendurvekjanlegt á okkar tímum (Epoch).

* Sneyddur af eikkur er svipað og að vera andlega og tilfinningalega vængstífður.


mbl.is Ísland eykur fjárstuðning við Úkraínu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Magndrifin gæðaskólun félagslegs íhaldsjöfnuðar

Eitt af því fyndnasta hjá Sjálfstæða Kommúnistaflokknum sem nefnir sig Sjálfstæðisflokk, og íhaldsflokk, var þegar hann kom á miðstýrðu Sovésku háskólakerfi í anda Stalíns með skemmtilegu orðalagi á borð við "... draga úr magndrif­inni há­skóla­starf­semi og ein­blína bet­ur á auk­in gæði þess ..."

Var eikkur að ræða aðalvopn hnattræns marxisma Frankfúrt skólans; flókinn texta með löngum orðum?

Sérstaklega þótti manni áhugavert að nákvæmlega ekki ein Bergmálsdúkka og engin Leirstytta gerði við þessu svo mikið sem hálfa athugasemd. Því manni þykir ávallt vænt um þegar Óreiðuskoðanaröskun manns sjálfs, er staðfest af hjörðinni allri.

Sieg Heil, Ein Europa, Ein ESB, Ein Úrsúla. Allir í sprautu.

Til hamingju Stórastamúgsefjunarland, þú hefur nú bestu miðstýrða háskólanám félagsles íhaldsjafnaðar og ESB paradísar ... í boði Zionistakommúnista Davíðs Oddsonar.


mbl.is Svarar fyrir ríkisvæðingu háskólanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sorosmiðlar Stórastamúgsefjunarlands

Ef fylgst er með þeim erlendu miðlum sem starfa eftir Project Syndicate markmiðum, sem er George Soros verkefni til hliðar við Open Society skilvindurnar  - sést að fjölmiðlar á Stórastamúgsefjunarlandi marséra í takt.

 

 

Þeir geta ekki afneitað stórsigri AfD í Þýskalandi en þeir reyna að flagga öðru í staðinn og þeim gengur verulega vel að þegja USAID hneykslið í hel.

Fyrir mörgum áratugum stofnaði CIA - sem m.a. vinnur náið með Soros verkefnum (hinthint) - verkefnið Mockingbird (Hermikráka), sumir vilja meina að titillinn tengist þeirri sálfræði sem fjallað er um í kvikmyndinni To Kill a Mockingbird en hver veit.

Verkefnið snérist einmitt um það að CIA hefði algjöra stjórn á þeim áróðri og uppfræðslu sem fjölmiðlar á Vesturlöndum, og sérstaklega Bandarískir, störfuðu eftir. Undanfarna áratugi hafa allar fjölmiðlakrákur Vesturlanda gert grín að hverjum þeim sem bendir á þetta og uppnefnt Samsæraútkýrendur (Conspiracy Theorists).

Bergmálsbrúður vitna stundum í Dr. Goebbels, þegar hann sagði "til að fá fólk til að trúa einhverju - sama hversu fáránlegu - í blindni, þarf aðeins að endurtaka það nógu oft og í slögurum." Staðreyndin er sú að hann var að gera grín að Edward Bernays og Amerískum Propaganda, sem hann sjálfur beitti ekki, en þér er sagt annað, í slögurum.

Almenningur hefur elskað að afrita hið innprentaða viðhorf - rétt eins og fyrrnefnd Bíomynd fjallaði um svo eftirminnilega, sérstaklega 2020-2023, ef einhverjum var sagt frá einhverri opinberrri lýgi var svarað "engar samsærakenningar takk" og samræðan slaufuð. En viti menn, nú er DOGE verkefni Elon Musk búið að fletta ofan af hvernig USAID stofnunin í Ameríkuhreppi hefur ekki aðeins unnið Mockingbird verkefnið af fínlegri alúð, heldur eins og risastór jarðýta, með stjórnarbyltingum, hryðjuverkamönnum og alles.

Segja má að vel flestar samsæriskenningar undanfarna fjóra áratugi, séu nú opinber staðreynd. Nema Covid, og Helförin, og Níuellefu, nottla.

Þá er áhugavert að DOGE hefur flett ofan af stórfelldri kennitöluspillingu í tengslum við Velferð (Wellfare) í sama hreppi, þar sem fjöldi þeirra er undir merkjum Félagslegs Jöfnuðar hirða ekki aðeins stórfenglegar upphæðir í skjóli ófinnanlegra einstaklinga - m.a. yfir 20.000 þeirra eru eldri en 99 ára - og þegar allt er talið er heildar hópurinn í raun fjölmennari en borgarar Sambandsríkisins, og búið að birta listann! Í alvöru heimi, væri þetta stórfrétt.

Nú eða listinn yfir alla Litabyltingar og Áhrifavalda klúbbana og undirverktakana um allan heim sem birtur var nú fyrir helgina ... þeir sem standa fyrir mótmæla aðgerðum og öðru sem miðlarnir hér heima "hermikrákast" að séu allt sjálfsprottnar grasrótarhreyfingar ... nei, þetta eru bara þaggaðar samsæriskenningar hér á Múgsefjunarklakanum.

Sem minnir sosum á Braggamálið og 14.400 íslensku kennitölurnar ...

Fleira er að koma upp úr þessari sorptunni og fleira á hliðstæðar tunnur á Stórastamúgsefjunarlandi.

Engar samsæriskenningar lengur heldur staðfestar upplýsingar ... og listinn lengist ... en þessa dagana er mest gaman að fylgjast með krákuskilvindunni, þ.e. hvað ratar í Múgsefjunarmiðla Félagslegra Lýðskrumara og hvað ekki.

Sem minnir á annað.

Ríki, og sérstaklega heimsveldi, viðurkenna aldrei mistök eða lygar, nema verið sé að fela eitthvað annað. Til að mynda, þegar innrásin í Írak var afstaðin 2003, viðurkenndu Uk og Usa, að það voru engin gjöreyðingarvopn og að innrásin var tja, misskilningur, ... --hinthint!

Já, Saddam átti kjarnorkusprengjur en gaf þær um leið og innrásin hófst, en hverjum gaf hann sprengjurnar? Þetta er ekki hægt að viðurkenna, og því frekar að viðurkenna að það var á misskilningi byggt að 35 milljón manna þjóðríki var lagt í rúst og milljón börn drepin. Til að vernda okkur gegn Pútín, eða þannig.

Þetta er alvöru samsæriskenning - skráð í Arkívinu fyrir fáeinum árum með útskýringum - en ekki bergmál frá USAID eins og allar samsæriskennningar undanfarna tvo áratugi! Og JFK var aldrei drepinn, ekki heldur Marilyn, þau lifðu góðu lífi á Samóa eða annarri eyju á Suður-Kyrrahafi eftir að dauði beggja var siðsettur.

 

 

Sem minnir á að 99 prósent hvalveiða voru á Suður Kyrrahafi: Xanadu,
sjá Rudolf Steiner og Francis Bacon ... bilað kúl samsæri
... operation golden lily.

Mele Kalikimaka ... allir í sprautu ...


Og "í Liverpool eru framleiddar saumnálar"

Ég geri ráð fyrir að meistari Þórbergur fyrirgefi, stuldinn á háðinu, en þegar tengd frétt er lesin, kemur upp í hugann háð hans í Ofvitanum á menntun samtíma síns. Því ekkert hefur breyst, flónska, skammsýni, rörsýn og fjötur einkennir þá sem varða alla upplýsingu og vit.

Svipað því þegar Gunnar Dal sagði, með öðru enn beittara háði, "Mogginn er Biblía Íslendinga" því þó eggin í háðinu skiljist hraðar hér en hjá Þórbergi, þá skilst hún betur síðar, jafnvel mörgum árum síðar, þegar fattast hversu djúpt var skorið.

Við útskýrum ekki nánar, hvorki Tobba né Gunna, ekki hér, því mesta háðið er þegar hvert orð er valið, misserin út og árin inn, og ræðan ofin þannig að hugum skilst en leiraðum kjánalegir tötrar.

Þessa list tekur mörg ár að læra, og mörgum bögum fleygt fyrir róða, en hún endar á þann veg að maður skilur ekki sjálfan sig, og þá er nýtt þrep klifið.

Má þó benda á, eftir orðapjátur tengdrar fréttar, að hið eina sem er áhugavert við snillínginn Noruh Jones, er föðurbróðirinn og það sem gerði hann frægan, en til að finna það út, fattarðu Sítar, og pabbann og systurina, og leyndardóm andans sem gengur í erfðir og smitar út frá sér, sem ég skil ekki en fjölæringar hafa allir velt fyrir sér í gegnum aldirnar.

Þegar fólkið sem fræðir okkur, vinnur enga heimavinnu né heldur ber virðingu fyrir sjálfu sér, fáum við ekkert að vita annað en grjón og baunir í vanelduðum graut, en þegar við höldum að það sé veruleikinn, og að bergmálið í leiraðri sálinni sé eitthvað annað en ekkert, endum við sem fórnardýr í vaxhöllinni, og þá þarf að útskýra sumum að hér sé ekki rætt um Vaxhöllina 21.

Þetta er soldið eins og með fólkið sem trúir á flata jörð og Cheimtrails, og verður reitt þegar maður segir, að það tákni eitthvað annað.

 


mbl.is Norah Jones á leið til Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband